You are hereTónlist

SNL
Síðasti þáttur Saturday Night Live reyndi að gera dónanafnagrín sem virkaði ekki of vel. Var temmilega fyndið en kemst ekki með tærnar þar sem DeNiro hefur hælana. Það er bara eitthvað of fyndið við Robert DeNiro með kúka og pissugrín:
Bónus, besta tónlistaratriði á SNL (fyrir utan Ashlee Simpson, að sjálfsögðu), Beck.

Sir Majesty
Doddi að spila á föstudaginn, fyrir áhugasama í New York.


Vorboðinn ljúfi
Loksins er komið vor hérna í New York, allavega fram að helgi, og þá er víst kominn tími til að byrja aftur að skokka í garðinum í stað þess að fara á hlaupabrettið í ræktinni. Í ræktinni horfi ég bara á sjónvarp og hef því ekkert saknað þess að vera að hlusta á tónlist en þegar ég er að lyfta þá er stundum hálf einmannalegt. Þess vegna held ég að það sé tímabært að fá sér iPod fyrir skokkið og lyftingarnar (ú hljómar eins og ég sé massakarl).

En það er ekki nóg að hafa tónlist, það skiptir máli hvernig tónlist maður er með í eyrunum til þess að hvetja mann áfram.
Þess vegna langar mig að fá tillögur frá lesendum okkar að lögum.
Hvað hlustið þið á til að koma ykkur í WorkOutStuð?
... og já hvað litur finnst ykkur flottastur?



