Voða mikið að gera hjá okkur þessa dagana. Það er allt morandi í lokaverkefnum og prófum. Ég spurði Gunnar, bróður Ólafar hvort ég mætti ekki gera lokaaverkefni í kringum gæludýrabúðina hans og hann játti því. Þannig að nú er ég að skoða reksturinn hjá þeim félögum í Dýragarðinum og sjá hvort ég geti bent þeim á eitthvað sem betur mætti fara.
Fólk hefur verið að kvarta yfir þessu kommentakerfi. Reyndar bara vinir mínir, enda erum við allir minna gáfaðir. Ég meira en flestir, nema kannski Óli og Ágúst. Vonandi virkar þetta núna.
Bæ þe vei, ef einhver hefur ekki enn séð þetta...
