You are hereBlogs / olofh's blog / Í fréttum er þetta helst

Í fréttum er þetta helst
Það var óskað eftir bumbumynd svo TaTa. Eins og þið sjáið þá fer það ekki fram hjá neinum að ég sé ólétt þessa dagana, ég er HUGE!
Við höfum verið á fullu undanfarið. Gummi kláraði síðustu kúrsana sína í síðustu viku á á bara eftir að klára smá vinnu fyrir einn prófessorinn.
Vörnin mín var svo í dag og því þungu fargi af mér létt, þó ekki bókstaflega eins og þið sjáið á myndinni
. Ég á því bara eftir að klára ritgerðina og þá verð ég líka búin, jeijeijeijeijeijeijeijeijeijeijei.
Framundan er svo útskriftin og erum við svo heppin að stór hluti af fjölskyldum okkar ætlar að mæta. Ef þau lesa þetta þá er kannski rétt að minna þau á að það er ekki seinna vænna en að fara að hækka erlendu heimildina á kreditkortunum
.
Svo þurfum við víst að fara að byrja að undirbúa komu frumburðarins. Mér skilst að 3 samfellur og 1 par af skóm sé ekki nóg
.
En talandi um skó, uppáhalds umræðuefnið mitt, þá verð ég að sýna ykkur bjútífúl skóna sem að ég var að enda við að panta. Þeir lofa þeim í hús fyrir 8. júní svo að þeir munu ná í hús fyrir flutninga.
Finnst ykkur þeir ekki flottir?






ÆI MÚSSÍ!!
Guð hvað þú ert mikið mússí Ólöf... ljómar eins og engill með þessa risa krúttlegu kúlu:) Til hamingju með vörnina og með þetta bara allt saman. Knús á Gumma. Hafið það ótrúlega gott!!
Vá bjútífúl sjús. Til hamingju með vörnina og fallegu bumbuna sem er farin að gægjast.
Hvað segirðu eru þrjár samfellur ekki nóg?! Og ég er ekki búin að kaupa neitt skópar! Ómæ.....
Takk fyrir það
.
Varðandi samfellurnar þá grunar mig að við þurfum aðeins fleirir ;)
Ef að þig vantar skó fyrir litla, láttu mig þá endilega vita. Ég er svolítið góð í þessum skókaupum. Er einmitt í smá æfingu núna þar sem að ég keypti 4 skópör um helgina:)
ÉG gleymdi ..................
að kommenta á skónna... þeir eru mega geðveikir!! En getur þú nokkuð verið í svona ólétt (og sem nýbökuð mamma)... þarf ekki einhver bara að geyma það fyrir þig þangað til þú getur notað þá almennilega.... ég skal alveg bjóða mig fram:):)
Kiss kiss!
Hahah já takk fyrir það :)
Ég sé einmitt ekki fram á að geta notað þá mikið á næstunni og ég var farin að hafa áhyggjur um að þeim myndi leiðast inni í skáp næstu 3 mánuðina. Gott að vita að maður eigi svona góða að
.
Æðisleg bumba! Þú ert rosalega myndarleg, er ekki frá því að litli kútur sé plássfrekari en litli hnorðinn minn á sama tíma ;-)
Til hamingju með vörnina!
Hagnýtt ráð: Mæli með Carters samfellum (og Carters almennt) frekar en Gerber þó þær séu aðeins dýrari, þær haldast svo fínar og sjúskast ekkert jafnvel eftir mikinn, mikinn þvott og notkun.
Takk fyrir
.
Já það lítur út fyrir að bumbi ætli að verða ágætlega stór. Ég er með smá áhyggjur að hann verði eins stór og Gummi var þegar hann fæddist. Hann var 19 merkur og aldrei hafði fæðst svo stórt barn þar ,á spítalanum í Kanada, áður.
Ég heyrði frá frænku minni um daginn einmitt um þessar Carters samfellur. Það er ekki spurning, ég mun fara og kaupa slatta af svoleiðis.
Vásí hvað þú ert gullfalleg með svona kúlu á maganum. Þú ert alveg fædd í þetta. Efast ekki um að þetta verður ofsalega hraustur hnorði ;)
Skórnir eru líka ofsalega flottir, gullskór eru alveg málið. Á ekki að vera í þeim á útskrifitnni?
hilspils frá norðurslóðum
V
Jeyyyyy bumbumynd og það svona líka fín og krúttaraleg bumba! Ég verð að taka undir með fyrri ræðumönnum, Carters samfellur rokka! Ohh hvað verður skemmtilegt að hitta ykkur þegar þið komið með allt ykkar hafurtask heim á klakann. Og ennþá skemmtilegra þegar Boy Georg kemur í heiminn og hann og Hekla geta farið að leika:)
Jæja hafið það gott og góða skemmtun á útskriftinni.
Kossar og knús
Björg&Ágúst&Hekla
p.s. varðandi skóna þá eru þeir algjörlega BJÚTIFÚL!!!!