You are hereBlogs / olofh's blog / Skeletor

Skeletor
Þegar ég sagði "wow this is strange" þá var svarið sem ég fékk frá truntulegu hjúkkunni "no this is cute"
.
You are hereBlogs / olofh's blog / Skeletor

Þegar ég sagði "wow this is strange" þá var svarið sem ég fékk frá truntulegu hjúkkunni "no this is cute"
.
Nei sko, þetta á ekkert að vera kjút. Þetta er Skeletor. Nú verður ykkar eintak að líta út eins og He-Man eða She-Ra. :)
[flickr-photo:id=140717344,size=-]
Það er pínulítið flókið að kommentera á þessa mynd án þess að taka sjensinn á því að móðoga hina stoltu foreldra :D
Svo við förum bara einföldu leiðina og segjum: Til hamingju! Megi afkvæmið hafa marga ofurkrafta til að bera þegar það kemur í heiminn!
Til hamingju með litla ofur-kútinn!!! Kúturinn er bara alveg eins og pabbi sinn :)
(lítill fugl var reyndar búin að hvísla þessu að mér en vildi ekki segja neitt fyrren þetta væri orðið opinbert). Hafið það ótrúlega gott. Risa knús!!
Takk kærlega.
Guð já
ætli hann verði ekki alveg eins og Gummi.
líst vel á he-man hjá okkur eða þá supergirl :)
Já það væri flott
Svo er auðvitað alltaf þessi fljúgandi álfur (eða hvað þetta er) sem er á He-man myndinni
Vá, myndarleg beinagrind. Þið megið vera stolt :)
Hahaha....mér finnst þetta nú bara nokkuð myndarlegt eintak!...
Til hamingju með Skela litla... mér sýnist nafn barnsins ekki vera á skrá, en það er alltaf hægt að prófa að sækja um . Fyrst börn mega heita Bambi þá hlýtur að vera einhver séns...
Hahahah já það er spurning
Ef að þeir neita þá getum við svo sem íslenskað nafnið aðeins.
Mig minnir að hann hafi heitið Beini í íslensku talsetningunni og það nafn uppfyllir allavega beygingarreglurnar
Ég veit ekki betur en að Skeletor beygist líka skv. íslenskum beygingarreglum og hafi eignarfallið Skeletors svo það ætti að vera samþykkt. Þið getið því andað léttar :D
Ég mundi bara kýla á það. Eruði búin að spá í millinafnið? Mér fannst Jóna Karen koma með góða hugmynd....Bambi, það er líka nafn sem mýkir heildarnafnið aðeins....Skeletor Bambi fær því mitt atkvæði.
Kjút er kannski ekki orðið sem ég myndi nota en mér finnst þetta mjög töff mynd :) til hamingju með Skeletor elskurnar mínar, sakna ykkar xoxo