Sæl öllsömul.
Loksins, loksins, fyrsta ploggið mitt. Ég hef þá áráttu að vilja helst ekki plogga nema að ég hafi e-ð merkilegt að segja. Því læt ég nú staðar numið og vísa heldur í ástæðuna fyrir því hvers vegna ég hef hvorki ploggað reglulega né klárað meistaraverkefnið mitt við HÍ:
http://en.wikipedia.org/wiki/Procrastination:
The Tense-Afraid Type of procrastinators would usually feel "overwhelmed with pressure, unrealistic about time, uncertain about goals" and many other negative feelings. This person would therefore feel they are lacking some ability to do this work, and would try to escape this stress by relaxing. This temporary escape would then fall away, leading to an even more stress to this over-worked person. This would lead to this person feeling guilty, and therefore more apprehensive. It can also have a debilitating effect on their personal life and relationships. Since they are uncertain about their goals they can often feel awkward when with people who are confident and self-aware; in turn they can often fall into depression. They tend to withdraw from social life and they may often avoid contact, even with close friends.
...og fyrir meistaraverkefnið, http://en.wikipedia.org/wiki/Academic_procrastination:
The situation is worse at the graduate level, where the conditions are perfect for procrastination-intangible mental work with flexible deadlines and unclear goals.
Gleði, gleði...
Ég hef þó verið ansi duglegur undanfarið og hef þá aðallega verið að dúllerast í:
- Námskeiðum í skólanum. Þau eru þrjú talsins, "Marketing", "Entrepreneurship" og "New Product Management". Af þeim er "New Product Management" langsamlega besta námskeiðið. Ástæðan fyrir því er mjög góður kennari.
- Rannsóknarverkefni fyrir Dr. Bharat Rao. Það er enn að fæðast hjá okkur en það mun fjalla um ný fyrirtæki og tækifæri sem hægt er að flokka undir þann breiða hatt: "Web 2.0".
- Vinnuverkefni fyrir skrifstofustjóra Management deilarinnar við Polytechnic University. Ég á að skrifa PHP forrit fyrir ýmis "verkflæði" í umsóknarferlinu og meðhöndlun framhaldsnema við deildina. Eins og rannsóknarverkefnið þá er verkefnið á byrjunarstigi.
- Vinna fyrir Netið við síðurnar www.veitingastadir.is>/a> og www.visitorsguide.is.
- Meistaraverkefninu mínu. Nuff' said.
- Uppsetningu þessarar síðu. Loksins, loksins lærði ég almennilega á Drupal. Kannski plogg eða grein um það síðar.
- Uppsetningu tölvunnar minnar. Setti hana upp með klofinn persónuleika, Gentoo Linux og Windows XP. Margt sniðugt við Gentoo-inn, einna helst [Varúð, tölvmál!] emerge. Vonandi sérgrein um þetta síðar.
- Flytja til Bandaríkjanna, finna íbúð, kaupa rúm, kaupa húsgögn, kaupa tölvu fyrir Ólöfu, kaupa sjónvarp, byrja að æfa, hýsa Ásdísi og Dodda í nokkra dýrlega daga, læra hvar á að versla í Brooklyn, vaska upp, ryksuga og fara allt of seint að sofa.
Annars er það í fréttum að ég sakna ykkar og má þá sérstaklega nefna föstudagshádegismat hjá Svölu ömmu.
Allir [sem ég þekki] eru velkomnir í "unaðsheimsókn um dýrðir Nýju Jórvíkur" (TM).
