Steppdans

Púsli púsl

Eitt sem að mér finnst skrítið hérna er að nú eru laufblöðinn öll að fljúka af trjánum en samt er 15°C úti.

Þegar laufin fóru að verða rauð þá fórum við í göngutúr um Prospect Park og síðan þá hefur mig langað þvílíkt að fara að púsla. Svona haustliðuð tré minna mig alltaf á það þegar við Erlen vorum að púsla í sveitinni með Gyðu.

Síðan þá hef ég bara púslað eitt púsl og það tók mig 2 ár. Það var frekar erfitt en það voru margar langar pásur teknar.

Gummi í garðinum

Það er annars ekkert að frétta af okkur. Dagarnir renna svolítið saman í eitt þegar maður er bara heima að læra alla daga. Við erum reyndar að reyna að mæta oftar í ræktina, hingað til höfum við verið svona styrktaraðilar frekar en meðlimir. Ég dró einmitt Gumma fram úr rúminu fyrir allar aldir í morgun, hálf 9 ( Smiling ), til að fara þangað.

Við erum alltaf að reyna að fara fyrr á fætur en þegar maður er í skólanum á kvöldin þá er ekkert sem rekur mann á lappir.

Annars var ég bara í þessum skrifuðu orðum að fá það staðfest að Lára og Íris ætla að koma til mín eftir 2 vikur. Íris er á leiðinni heim eftir djammdvöl í LA og Lára fær smá frí fyrir lokapróftörnina. Ohh það verður svo gaman hjá okkur. Kannski kemur ein enn en það á eftir að koma betur í ljós.

Held að það búi steppdansari á hæðinni fyrir ofan okkur, brjáluð læti í þeim í allan dag. Voða fínt þegar maður er með hausverk.

Syndicate content
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook