Síðan síðast þá er ég búin að fara í 2 próf, það seinna núna í kvöld og það gekk bara ágætlega í þeim báðum.
Þegar ég gekk út úr prófinu áðan var ég bara frekar ánægð með sjálfa mig. Gekk spert eins og hani og hugsaði SKO MIG. En svo þurftu þeir endilega að gefa manni lausnirnar í dyrunum. Ekki lengur svo ánægð með mig en þetta gekk samt ágætlega. Gerði annað dæmið alveg rétt en í hinu gleymdi ég að deila með 3 sem hafði keðjuverkandi áhrif út dæmið. Nú er bara að bíða og sjá hvernig kennarinn gefur fyrir.
Það er annars búið að vera frekar rólegt hjá okkur. Við höfum bara verið að læra, horfa á sjónvarpið, læra og já læra. Þar sem að ég er Íslendingur og dóttir föður míns þá er ekki úr vegi að ræða aðeins um veðrið. Það var eins og slökkt á væri hitanum allt í einu. Það var sól og rúmlega 20 stiga hiti einn daginn og síðan var það bara allt í einu búið og ógeðslega kalt. Samkvæmt veðurspánni eru 10-14 gráður úti þessa dagana en ég get sagt ykkur að það er kjaftæði. Allavega er þá rakinn að hafa mikil áhrif því að heima þarf maður ekki að vera með vettlinga í 10 stiga hita.
Við komumst líka að því að við ákveðum ekki sjálf hvenær við kyndum kofann. Það er víst orkufyrirtækið sem ákveður hvenær sé hentugt að byrja að kynda allt húsið. Það var skítkalt hérna inni í tæpa viku og ég sat með sultardropa í flíspeysu og lopapeysu við lærdóminn. Við vissum ekki af þessu með hitann svo við reyndum fyrst að kveikja á ofnunum með því að skrúfa frá þeim öllum. Síðan þegar þeir kveiktu á hitanum þá vorum við heppin að vera heima. Þvílík læti! Það er ventill á ofninum í svefnherberginu sem flautaði gufu og við rétt náður að bjarga sjónvarpssnúrunum frá því að bráðna fastar við stofuofninn.
Ég er annars farin að fatta það betur að allt heldur áfram án mín heima. Litli frændi minn Baltasar er víst komin með 4 tennur og er farin að standa upp á milli þess sem hann skríður eins og herforingi. Eina vandamálið er víst að hann nær núna ofan í blómapottinn og honum finnst moldin góð. ![]()
Læt fylgja 2 myndir af guttunum mínum sem Erlen sendi mér.


Framundan er svo próf á mánudaginn og svo koma Erlen og Kiddi 3 nóv. Ég hlakka svo til að fá þau hingað. Hver veit nema að ég skelli mér í verslunargírinn með þeim og byrji að kaupa jólagjafir. Það er allavega farið að selja jóladót í Target og Gummi er farin að flauta jólalög.
Annars á amma mín afmæli í dag og vil ég bara enda á því að óska henni aftur til hamingju með daginn.












