Helgina 15. - 17. maí fórum við félagarnir í mótórhjóla- og fjórhjólaferð. Ekið var til Kirkjubæjarklausturs á föstudeginum og hjólað allan laugardaginn og í nokkra tíma á sunnudeginum.
Myndir frá laugardeginum eru komnar á Flickr myndasíðuna okkar. Myndir frá sunnudeginum eru komnar á Flickr myndasíðuna okkar.
Með í för voru:
| Nafn | Mynd |
|---|---|
| Gunnar aka dónakall | ![]() |
| Finnur aka bambi | ![]() |
| Kiddi aka vatnakötturinn | ![]() |
| Gummi aka múldýrið | ![]() |
Við vöknuðum snemma á sunnudeginum og keyrðum niður á strönd þar sem við bömbuðumst í sandinum fram eftir degi. Eftir sandinn keyrðum við í átt að Seglbúðum og lékum okkur í mótorkrossbraut í nokkra tíma. Síðan var keyrt heim á leið og magnaðri hjólaferð var lokið.
Nokkrar myndir frá sunnudeginum fylgja að neðan (frá Flickr).
Kiddi fastur
Okkur til hryllings gomsaði Gunnsi sig við stinningsgeisp. Hann var fljótur til og greip í hnakkann á sér, kippti fast og náði að afgomsast fyrstur manna á Íslandi án hjálpar frá Óla lækni.
Gummi á flugi í brautinni
Gunnar á flugi
Finnur á flugi









