minningargrein

Minningargrein Eyju ömmu

Eftirfarandi minningargrein fór í Moggann um elsku Eyju ömmu:

Minningargrein:

Við systkinin viljum minnast Eyju ömmu okkar sem kvaddi heiminn 24. febrúar síðastliðinn.

Amma var frábær. Í gegnum tíðina nærði hún okkur, bæði með veislumat og návist sinni. Heiðargerðið var eins og fjölskyldubakarí þegar við vorum krakkar. Óvíst er hvort nokkur manneskja hafi bakað eins margar pönnukökur og Eyja amma. Hún sykraði líf okkar.

Við ólumst öll upp við óteljandi spilakvöld með ömmu og afa. Boðið var til glæsiveislu í Heiðargerðinu og spjallað, hlegið og spilað fram á kvöld. Spilahefð fjölskyldunnar myndaðist á gleðinni sem skapaðist hvenær sem tekið var spil eða teninga með ömmu og afa.

Við höfum aldrei séð aðra eins barnagælu; börn löðuðust að Eyju ömmu eins og býflugur að blómum. Kristjáni yngri þótti yndislegt að heimsækja langömmu sína. Hún hafði einstakt lag á því gleðja hann; leyfði honum að hanga í nefinu í sér á meðan hann skellihló.

Eyja amma var dugleg og klár. Garðurinn hennar bar þess merki; glæsilegur og gaf af sér gæðakartöflur. Hún hvatti okkur til að standa okkur í náminu; henni þótti gaman að íslensku og stærðfræði en fékk ekki tækifæri til að klára sitt nám. Því finnst okkur nám barna og barnabarna tileinkað dugnaði hennar.

Sjaldan hafa sést eins mikil rassgöt og hjónin, Eyja amma og Gummi afi, á Grund síðustu æviár sín. Þegar við komum í heimsókn sátu þau saman, spilandi og spjallandi.

Takk fyrir allt Eyja amma. Við erum betri manneskjur vegna þín.

Kolbrún Svala, Guðmundur Jónatan og Elísabet Erla

Syndicate content
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook