Memphis

Bíltúr um Bandaríkin, dagur fimm: Memphis

Elvis!

Haldið'i að við höfum ekki bara heimsótt kónginn í dag og farið í skoðunarferð um Graceland, heimili Elvis Presley heitins.

Á undan því fórum við í gegnum nú hefðbundið hótelvakn og vesen. Skiptum um gististað og fluttum farangur og annan fylgifisk á annað Days Inn hótel rétt hjá Graceland.

Graceland er sneddí og skoðunarferðin gaf athyglisverða innsýn inn í líf goðsagnarinnar. Settur er punktalisti með skemmtilegum staðreyndum úr ferðinni:

  • Flugvél mjaðmahnykkjarans var nefnd eftir dóttur hans, Lisa Marie. Hún var glæsilega innréttuð. Gullkranar, fundarherbergi, einkaherbergi- og salerni, sími og skrautleg áklæði. Hananú.
  • Söngfuglinn þótti áfengi bragðast bagalega og drakk helst Dr. Pepper og Gatorade. Pillur og matur voru hans djöflar.
  • Hljóðtæki og heyrnartól leiðbeina gestum um heimili tónlistarmannsins og kvikmyndaleikarans.
  • Húsið var skrautlega innréttað og greinilegt að dátinn fyrrverandi var maður smáatriða. Húsgögn og skraut voru sérvalin.
  • Kvennagullið var mikið íþróttamenni og hafði svört belti í tveimur formum Karate. Hann hafði einnig gaman að amerískum fótbolta, byssum og bílum.
  • Maðurinn er grafinn við hlið fjölskyldu sinnar. Grafsteinninn hélt fallega málsgrein:

God saw that he needed some rest and called him home to be with him.

  • Flokkur listamanna ferðast um heiminn og sýnir upptökur af Elvis tónleikum "live. Súrt en satt.

Eftir skoðunarferðina tók við fyrsti "frídagur" okkur í fríinu. Við ákvaðum að slappa af við gítarsundlaugina, sötra bjór og gera girnilega sundfimleika. Doddi vann afturábaksnúkeppnina. Ég náði bara þremur hringjum af því að ég framkvæmdi afturábakrop.

Meltur var matur það kvöldið á "Texas de Brazil", brasilískum steikarstað. Þjónar skoppa um staðinn með mismunandi kjöt og spyrja hvort maður vilji smakka. Já takk við því og girnilegasta forrétahlaðborði sem þessi lillitilli hefur séð. Við pakkfull þannig að það flæddi matur út um anusinn.

Miðborg Memphis var öll í geðveiki og pakkfull af ölvuðu fólki. Við þurftum að sýna skilríki inn á aðalgötuna. Settumst niður á útiskemmtistað með lifandi tónlist. Doddi kömmaði yfir söngkonunni sem var víst dóttir frægs sálarsöngvara. Hún söng vel. Enginn jóðlaði. Í turni fyrir ofan borðið okkar var geit að japla á heyi.

Á heimleið reyndi leigubílstjórinn að svindla á okkur. Það gekk ekki. Hótelherbergi, labba inn, allir sofna, Gummi slóra í tölvu og síðan sofna.

Syndicate content
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook