Jólagjafir

Tölvuves

Frá því að við blogguðum síðast höfum við lent í ýmsu og aðallega veseni.

Í stuttu máli þá fyrst dó tölvan hans Gumma, svo dó hún aftur og að lokum þá dó tölvan mín.

Mín er aftur komin í gang með nýjum hörðum disk og tölvan hans Gumma er í Californiu og gaurarnir þar eru búnir að finna loksins hvað er að. Ef að það gengur að laga hana þá verður hún komin hingað aftur eftir 2 vikur. Þangað til skipum við minni tölvu bróðurlega á milli okkar þar sem við erum bæði á lokasprettinum með verkefni þessarar annar.

Ég fór í bæinn með Ásdísi í gær að kaupa jólagjafir, smotterí handa sjálfri mér og svo aðeins jóladót. Í nýja flotta símanum mínum er skrefateljari sem að segir hversu langa vegalengd maður labbar á hverjum degi. Eftir að hafa skoða hversu langt við löbbuðum þá skil ég vel afhverju mér var illt í löppunum, 8km á hælum, geri aðrir betur.

Syndicate content
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook