Við erum nú ekkert sérstaklega dugleg að blogga hérna og en vonandi fyrirgefið þið okkur það.

Gummi á leiðinni heim á djamminu - eina myndin sem við tókum þetta kvöldið
Næst ber að nefna Thanksgiving eða Þakkargjörðarhátíðina sem var síðasta fimmtudag. Kolla og Steven komu til að vera hjá foreldrum hans og við fórum þangað líka. Daginn áður, á miðvikudaginn, skellti Steven sér á skeljarnar og nú stefnir allt í sumarbrúðkaup á Íslandi, gaman gaman. ![]()
Fjölskyldan hans Stevens tók rosalega vel á móti okkur og maturin var geggjaður. Við mættum nánast beint í matinn og síðan spiluðum við fram á kvöld. Ég komst í jólafíling við þetta og núna eru bara 23 dagar í að við komum heim JEI. ![]()

Nýtrúlofaða parið
Við fengum líka loksins sófaáklæðið á sófan okkar. Það átti að vera komið 3 vikum eftir að við keyptum sófann en það endaði með því að við gátum pantað helminginn 10 vikum seinna og Kolla keypti hinn helminginn í Chicago. Síðan áttum við alltaf eftir að kaupa sófaborð þar sem við ákváðum að panta það með áklæðinu. Það kom í gær nokkrum dögum á eftir áklæðinu og auðvitað þurfti það að vera laskað. Kassinn sem það var í var límdur saman eftir að hafa greinilega rifnað og síðan var honum pakkað í bubble-plast og svo annar rifinn og límdur kassi utan um það. Þannig að miðað við fyrri reynslu þá vissum við það strax að það væri ekki eins og nýtt. Þeir höfðu samviskusamlega hamrað inn öll 4 hornin á borðplötunni. Gummi hringdi í vini sína í þjónustudeildinni og þar fékk hann þau svör að þetta væri frekar algengt hjá þeim(really) og að þeir myndu bara senda okkur nýtt. Fyndna var að þeir vilja ekki hitt borðið til baka, ekki það að þeir geti eð notað það, þannig að við settum það bara saman og ætlum að notast við það þangað til að hitt kemur.

Nýja borðið, sést smá í sófaáklæðið og leggina hans Gumma
Talandi um að panta hluti á netinu þá keypti ég mína fyrstu skó á Zappos. Nú verður sko ekki aftur snúið, næst er að reyna ebay. Lára átti í rosabaráttu á ebay fyrir nokkrum dögum og Íris er mesti "ebay snillingur"
sem sögur fara af og þar sem þær koma hingað eftir ca 10 klukkutíma þá gæti það bara verið fljótlega.
Ég ætti kannski að fara að sofa til að vera hress þegar þær mæta á svæðið. Það er svo mikið að gera hjá Gumma núna að hann lærir fram á nætur og ég hangi bara í tölvunni og horfi á sjónvarpið á meðan. Fatta stundum ekki að ég geti farið að sofa.
Góða nótt
