Hér er sko búið að vera nóg að gera undanfarið. ![]()
Þann 16 komu Ásta Villa og Tanja, frænkur hans Gumma hingað til NY því að Ásta Vila var með bás á sýningu. Við Gummi fórum og hittum þær á bar sem heitir ONE Litle West á föstudeginum þar sem að við ætluðum að fá okkur kannski einn drykk með þeim. Þúsund drykkjum síðar og leigubílaferð sem að við borguðum víst aldrei tók við súrasti þynnkudagur ever. Ég ætla ALDREI að drekka aftur (í febrúar). Við fórum líka og kíktum á sýninguna á sunnudeginum sem var rosalega flott. Fullt af fatahönnuðum samankomnir undir einu þaki og allt geðveikt flott. Við sáum eina fræga gellu á svæðinu. Hver man ekki eftir Melrose úr síðasta Americas Next Top Model sem fór í taugarnar á öllum.
Á miðvikudagskvöldinum fórum við svo á Sushi Samba þar sem við fengum eins og alltaf geggjað sushi. Ásta Villa fór svo heim á fimmtudeginum og Tanja gisti hjá okkur eina nótt áður en hún hélt áfram til Miami. Við Gummi erum að vonast til að geta heimsótt hana þar fljótlega.


Á föstudeginum komu svo Sólrún og Lee. Þau eru að fara í brúðkaup á Long Island næsta laugardag og verða hjá okkur fram á föstudag. Ég er búin að borða non stop síðan að þau komu. Mamma og Erlen sendu mér flatkökur, hangikjöt og nammi með henni og síðan kom Sólrún líka með nammi og ég missti mig alveg í áti. Á sunnudaginn fór ég með þeim og við skoðuðum efri hluta Manhattan. Fengum okkur að borða í Whole Foods, löbbuðum um Central Park, fórum á 5th ave., fengum okkur kakó í Donald Trump byggingunni og fórum á Times Square. Við Gummi þurftum svo að læra og fara í skólann í gær og í fyrradag en í dag ætlum við að fara að skoða Kínahverfið, Litlu Ítalíu og kíkja í nokkrar búðir.


Um kvöldið var svo Óskarsverðlaunapartí hjá okkur þar sem við veðjuðum á úrslitin og vann Lee með yfirburðum. Í kvöld byrjar svo nýja serían í Americas Next Top Model með 2ja klukkutíma þætti sem að við Sólrún ætlum sko ekki að láta fram hjá okkur fara.
Á föstudaginn þegar þau fara yfir til Long Island þá ætlar Ásdís að koma frá Boston. Hún og Doddi fá víst ekki spring brake á sama tíma svo að ég verð svo heppin að fá hana til mín, veivei! Við ætlum að hafa það rosalega gott og jafnvel kíkja í H&M
.
Já eitt sem að ég gleymdi að nefna. Á föstudaginn síðasta plataði ég Gumma með mér í Crate and Barrel þar sem að hann gaf mér kertarekka. Lára var með svoleiðis í stofunni sinni og síðan við fórum til Boston um daginn hefur mig langað í svoleiðis. Gummi handlagni skellti honum svo upp á vegg með vinstri og síðan þá er búið að vera svo kósí hjá okkur. Loksins loksins er komið eitthvað á stóra tóma stofuvegginn.













