Fyrsti dagur Bíltúrsins um Bandaríkin er nú að líða að lokum. Doddi, Ásdís, Lára og Nína sóttu okkur í New York um hádegi eftir að hafa keyrt í fjóra tíma frá Boston. Bíll okkar ferðalanga er glæsileg Toyota Sienna geimskutla.
Dagana á undan og um morguninn höfðum við Ólöf verið að finna okkur til, bæði fyrir Bíltúrinn og ferðina til Íslands. Við fljúgum frá San Francisco til New York kvöldið 10. júní og fljúgum heim til Íslands kvöld eftir. Það var því um að gera að finna allt til fyrirfram.
Eftir gómsætan mat á "Dinernum" okkar á horni sjöunda strætis lögðum við af stað til Philadelphia. Tveimur tímum, nokkrum pókerbóksblaðsíðum og kríublundi seinna blasti við sjálfstæðisborgin Philadelphia.
Við lögðum bílnum og röltum um borgina. Megintúristaþemað er sjálfstæðisbarátta Bandaríkjamanna um lok 18. aldar og bera nöfn gamalla, endurgerða bygginga þess merki. Veðurguðirnir voru okkar bestu vinir og nýttum við okkur velvild þeirra með rölti um Washington Square Park. Garðurinn var fallegur og Doddi ekki síður geislandi af kynþokka.
Eftir allt röltið fórum við á Haru og fengum okkur gómsætt sushi. Við spurðum þjónninn um "must-see" staði í Philadelphia og erfiðleikar hans að svara virtust gefa til kynna að þeir staðir væru fáir. Hann sagði okkur þó frá Philadelphia Museum of Arts, sem við keyrðum síðan til. Klukkan var orðin of margt til að kíkja inn þannig að við röltum að húsinu, tókum nokkrar myndir af okkur við Rocky-styttuna og lögðum galvösk af stað til Washington.
Á leiðinni rannsakaði Lára hótelvalkosti og Doddi var tengill okkar við hótelheiminn í gegnum talsíma. Nína keyrði bæði til og frá Philadelphiu og skilaði okkur hálfa leið til Washington á Days Inn hótelið. Við fengum tvö herbergi og lúllum í nótt með Dodda og Ásdísi.
Miðnætti nálgast á Days Inn og Bíltúrsdagur eitt líður að lokum. Sautján dagar eftir. Nammi namm...
