Broadway

Núna á ég líka tölvu...

Tagged:  

... þannig að núna sitjum við Gummi hérna í sitt hvorri tölvunni og með sjónvarpið líka í gangi. Ætli þetta endi með því að við tölum saman á msn-inu hérna heima? Kemur í ljós:)

Ásdís og Doddi komu í heimsókn til okkar núna um helgina eins og ég minntist á fyrr. Þau komu á fimmtudaginn og fóru núna í kvöld. Við vorum mjög dugleg að fara út og sáum meira af NY á þessum 5 dögum heldur en alla hina dagana samanlagt.

Við fórum á föstudaginn í Kínahverfið, Soho og Tribeca. Ætluðum líka í Litlu Ítalíu en okkur tókst að labba fram hjá henni. Það var alveg hrikalega kalt þann daginn þannig að við löbbuðum frekar rösklega og ég var gjörsamlega búin í löppunum í lok dagsins. Við enduðum á því að fara á MOMA safnið (The Museum of Modern Art) og þrátt fyrir að við værum þar í dágóðan tíma náðum við einungis að sjá hluta af safninu þannig að við munum reyna að fara þangað fljótlega aftur. Um kvöldið fórum við svo á The Improv Comedy Club þar sem við Ásdís fengum allra verstu strawberry daiquiri sem gerðir hafa verið. Hverjum dettur í hug að nota niðursoðin jarðaber í daiquiri?

Á laugardaginn byrjuðum við daginn á staðgóðum hádegismat sem samanstóð af amerískum pönnukökum, kanilsnúðum og beikoni. Síðan fórum við Ásdís í smá verslunarleiðangur á meðan strákarnir spiluðu pool. H&M stóð fyrir sínu en ekki voru keyptir skór í þessari verslunarferð. Um kvöldið elduðum við Ásdís enchiladas og bökuðum brownies og síðan átum við öll svo hrikalega yfir okkur. Enduðum kvöldið svo með póker.

Á sunnudaginn fórum við á Broadway að sjá Spamalot sem er leikrit sem byggt er á verkum Monty Python. Gummi vill taka það fram að þetta sé eitt skemmtilegasta leikrit sem að við höfum séð þannig að Kolla, þú átt endilega að fara að sjá þetta þegar þú kemur næst Smiling Eftir það fórum við svo á Sushi Samba en við fórum einmitt þangað með Dodda, Ásdísi, Kollu og Steven þegar við vorum hérna í fyrra og maturinn var alveg jafn góður, nammi nammi nammmmmmmmm.

Í morgun fórum við Ásdís svo í Sex and the City túr þar sem að við fórum í rútu á milli staða í borginni þar sem atriðin voru tekin upp. Túrgædinn var einmitt svo indæll að benda okkur á búð sem að selur merkjavörur með mjög góðum afslætti og þó að við næðum ekki að fara þangað í dag þá er nokkuð ljóst að ég dreg Gumma með mér þangað við fyrsta tækifæri. Ég verð nefnilega að fara að skoða hana áður en Erlen og Kiddi koma. Smiling Þau eru nefnilega búin að bóka miða og munu koma hingað til okkar 3. nóvember, vei vei vei Grin

Það er rosalega gaman að lesa kommentin frá ykkur og sjá hverjir lesa bloggið okkar svo endilega haldið áfram að kommenta.

Syndicate content
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook