Bloggleti

Læri læri læri

Jæja var að tala við Unni Stellu á msn þar sem að hún skammaði mig fyrir bloggletina og minnti mig á að próflestur er engin afsökun.

Fyrsta prófið mitt er á morgun og á ég núna að vera að lesa kaflann um differential relays en á eð erfitt með að einbeita mér. Hinn prófin mín eru svo á þriðjudag og miðvikudag svo að það verður nóg að gera næstu daga.
Gummi er búin að skila af sér 2 verkefnum af 3 og búin með þetta eina próf sem var hjá honum. Hann á að vera að vinna í því síðasta en núna er verið að sýna West Ham - Man. Utd. á Fox þannig núna liggur hann í sófanum og talar við sjónvarpið.

Eins og ég sagði frá í síðustu færslu komu Íris og Lára hingað í byrjun mánaðarins. Það var svo æðislegt að hafa þær hérna. Aldrei lognmolla í kring um þær frænkur. Við bæði höfuðum það rosalega kósí hérna heima og tókum líka túristapakkann.

Það sem stendur upp úr eru töskukaupin í Kínahverfinu þar sem við enduðum í ólöglegum kaupum í litlum 2 fermetra bakherberjum. Vorum búnar á því eftir þau kaup en skelltum okkur í Empire State. Það var svo mikið rok og svo ógeðslega kalt þar uppi að við Íris gáfumst upp fljótlega og biðum inni eftir Láru sem fórnaði sér og tók myndir af ljósadýrðinni. Hún var frekar lengi úti og þegar hún kom loks inn var hún blá á vörunum, úfin og í hláturskasti. Hún var nefnilega að passa sig að taka myndir af helstu kennileitum og húsum og hún fann bara ekki Empire State. Gekk hálfhring um turninn áður en hún áttaði sig á því að hún var uppi í þeirri byggingu. Mmmmuuuahahahahhahhaha.

Eins og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir þá eru fullt af spam-kommentum hér til hliðar og er Gummi búin að lofa að laga það við tækifæri.

Jæja farin að læra...

Syndicate content
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook