Albuquerque

Bíltúr um Bandaríkin, dagur átta: Amarillo og bíltúr til Albuquerque

Uppskrift að hressleikaköku:

  • Eitt vakn á hóteli í Amarillo.
  • Dass af nýkeyptum kúrekahöttum úr ferskri kúrekabúð, helst "Cavender's Boot City".

  • Einn og hálfur klukkutími af hádegismat á mexíkóskum veitingastað. Notist við "On the Border" fyrir viðbættan hressleika. Ef mögulegt, bætið við andfúlri, en þó indælli afgreiðslukonu.
  • Þrjú guacamole hrærð saman við limesafa, lauk og jalapeno.

Einn "Wiener Wagon".

  • Hálft til heil tylft af hálftímum á leikjastað. Best er að blanda saman í eina leikjakássu:
  • 12 hringir af hægu Go-Karti. Mjög mikilvægt er að biðja um mishraða bíla. Fyrir þolinmóða má ná einni magnaðri mynd af Nínu í Go-Karti.

  • Hringur af mini-golfi.

  • A.m.k. ein umferð af hafnaboltaleik með kastvél (e. Batting Cage) fyrir hvern einstakling. Hægt er að krydda leikinn með missterkum köstum eftir smekk einstaklinga. Rannsóknir hafa sýnt að estrógenhafar velja oft "Slow Softball" á meðan bragðlaukar stælgæja hneigjast í átt að "Very Fast Baseball". Gott er að láta Ólöfu bæði vera ansi færa með kylfuna og fara næstum því í splitt þegar hún slær.

  • Bjánalegum stappleik.
  • Gott er (en þó ekki nauðsynlegt) að bæta við ljúfum þjónustustúlkum sem eru ekki beint björtustu perurnar í skúrnum.
  • Stappið þessu öllu saman við u.þ.b. fimm til sex tíma keyrslu frá Amarillo til Albuquerque, hræódýrum mótelum með táneglur í teppinu, Pizza Hut og Taco Bell í kvöldmat, "The Breakfast Club&" í sjónvarpinu og svefni.
Syndicate content
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook