You are hereBlogs / gjk's blog

Kútur og ...?

Takk! (og bónusvídeó (ekki leigan (búmm búmm tiss)))
Takk öllsömul fyrir hlýjar kveðjur. Ég hlóð þetta á tölvuna og sýndi Ólöfu þetta. Hún var voða glöð með þetta allt saman.
Bónusvídeó hér, tekið þegar kútur var 20 mínútna gamall í fyrstu læknisskoðun (16 MB og varúð fyrir viðkvæma: í miðju myndbandi er drengurinn sprautaður með smá vitamíni
Músakoss ![]()

Pabbi og Mamma!
Haldiði að maður sé ekki bara orðinn pabbi! Þetta gat maður. Sjá myndir. Drengurinn er það sætur að ég hlýt að gera ráð fyrir að hann líkist mömmunni. Fyrir áhugasama þá er einnig lítill vídeófíll af Guðmundssyni að hnerra. Eða hneggja, þið ráðið. Takk æðislega fyrir hlý skilaboð í SMS-um, síma og í gegnum fjölskyldumeðlimi.
Glænýr
Glænýr, ekki sáttur útgáfan
Glænýr, held að putti sé brjóst
Glænýr, held að ég sé kuðungur
Knúsí
Stoltur pabbinn
Ljósmóðir og kútur
Kútur og arfaslakir ljósmyndahæfileikar pabba

Komin heim
Við Ólöf lentum á Íslandi 20. júní og erum alkomin heim. Við viljum þakka öllum þeim sem komu í heimsókn til okkar og þeim fáu sem höfðu þolinmæði í að fylgjast með einhverju alversta bloggpari Íslandssögunnar.
Takk fyrir okkur.
Í öðrum fréttum var George Carlin, heimspekingur og grínisti, að deyja, 71 ára. Hann var einhver fyndnasti maður í heimi og var almennt á móti trúarbrögðum, hræsni og annarri vitleysu. Megir þú hvíla í friði.
In the Bullshit Department, a businessman can't hold a candle to a clergyman. 'Cause I gotta tell you the truth, folks. When it comes to bullshit, big-time, major league bullshit, you have to stand in awe of the all-time champion of false promises and exaggerated claims: religion. No contest. No contest. Religion. Religion easily has the greatest bullshit story ever told.
Think about it. Religion has actually convinced people that there's an invisible man -- living in the sky -- who watches everything you do, every minute of every day. And the invisible man has a special list of ten things he does not want you to do. And if you do any of these ten things, he has a special place, full of fire and smoke and burning and torture and anguish, where he will send you to live and suffer and burn and choke and scream and cry forever and ever 'til the end of time!
But He loves you. He loves you, and He needs money! He always needs money! He's all-powerful, all-perfect, all-knowing, and all-wise, somehow just can't handle money! Religion takes in billions of dollars, they pay no taxes, and they always need a little more. Now, you talk about a good bullshit story. Holy Shit!
-- George Carlin --

SNL
Síðasti þáttur Saturday Night Live reyndi að gera dónanafnagrín sem virkaði ekki of vel. Var temmilega fyndið en kemst ekki með tærnar þar sem DeNiro hefur hælana. Það er bara eitthvað of fyndið við Robert DeNiro með kúka og pissugrín:
Bónus, besta tónlistaratriði á SNL (fyrir utan Ashlee Simpson, að sjálfsögðu), Beck.






















