May 2009

Fyrsta sundferðin

Laugardaginn 28. febrúar fóru Kristján og Almar í sund í fyrsta skiptið. Við fórum í Árbæjarlaug og með í för voru Gummi, Ólöf, Kiddi, Erlen, Þóra, Helgi Valur og Baltasar.

Kristján að hlæja að pabba sínum

Systurnar og synirnir

Almar hlæjandi

Almar hlæjandi

Myndaalbúmið má skoða á Flickr myndasíðunni.

Ýmsar myndir frá mars 2009

Myndir úr afmæli Eyju ömmu; heimsókn Brynju og Bjarts til Íslands; Kristjáni að leika sér með Gunnari, Baltasar og Írisi; og Kristjáni að fara að lúlla og á leiðinni út.

Kristján, Óli Venna og Eyja amma

Kristján, Óli Venna og Eyja amma

Íris sæta að leika við mig

Íris sæta að leika við mig

Rosa stuð

Brynja, Bjartur, Almar og Kristján

Snilldarsvipur

Snilldarsvipur

Flottu náttfötin frá Þóru frænku

Flottu náttfötin frá Þóru frænku

Gaman

Gaman

Myndaalbúmið má skoða á Flickr myndasíðunni.

7 mánaða og 1 dags gamall

Tagged:  

Tókum myndasessjón þegar Kristján var 7 mánaða og 1 dags gamall. Ég var að prófa mig áfram með að smella af myndavélinni eins oft og ég gat á stuttum tíma. Myndirnar komu ágætlega út. Það sést vel í tímaröð hvað Kristján hafði gaman af því að knúsa mömmu sína og hvernig hann grípur í hárið á henni til að koma henni nær til að hann geti nagað á henni hökuna.

Nammi namm.

Sperrtur eins og selur

Sperrtur eins og selur

Kyssa mömmu

Kyssa mömmu

Englabros

Englabros

Myndaalbúmið má skoða á Flickr myndasíðunni.

Bað

Fórum í bað (myndir eru frá mars 2009, þegar Kristján var 7 mánaða). Eins og venjulega þá finnst Kristjáni gaman í baði, sérstaklega þegar við Ólöf erum bæði að sinna honum. Hann er líkur pabbanum þannig, honum finnst gaman að fá athygli. Myndaalbúmið má skoða á Flickr myndasíðunni.

Bros!

Bros!

Glaður

Glaður

Sís

Sís

Myndasession með Kristjáni

Tagged:  

Það var pabbadagur og Kristján var eldhress. Ég vippaði myndavélinni fram og hélt smá myndasession. Yfirleitt var Kristján að reyna að ná myndavélinni eða að hlæja að vitleysunni í pabba sínum.

Halló!

Halló!

Grípið í tær

Gripið í tær

Of stór fyrir róluna

Tagged:  

Tæplega sex og hálfs mánaða gamall var Kristján orðinn of stór fyrir róluna sína. Myndirnar voru teknar 1. mars 2009.

Síðasta skipið í rólunni

Síðasta skipið í rólunni

Hékk bara í bandinu

Hékk bara í bandinu

Rólan var notuð þegar foreldrar þurftu að hoppa í sturtu eða gera aðrar miður girnilegar salernisaðgerðir. Nú þurfti að finna aðrar leiðir.

Halló vigt með rauðum blikkandi stöfum...

Mótorhjólaferð á Klaustur - Sunnudagur

Helgina 15. - 17. maí fórum við félagarnir í mótórhjóla- og fjórhjólaferð. Ekið var til Kirkjubæjarklausturs á föstudeginum og hjólað allan laugardaginn og í nokkra tíma á sunnudeginum.

Myndir frá laugardeginum eru komnar á Flickr myndasíðuna okkar. Myndir frá sunnudeginum eru komnar á Flickr myndasíðuna okkar.

Með í för voru:

Nafn Mynd
Gunnar aka dónakall Gunnar heimalingur 4
Finnur aka bambi Finnur
Kiddi aka vatnakötturinn Kiddi að undirbúa sig
Gummi aka múldýrið Gummi alvarlegi og mottan

Við vöknuðum snemma á sunnudeginum og keyrðum niður á strönd þar sem við bömbuðumst í sandinum fram eftir degi. Eftir sandinn keyrðum við í átt að Seglbúðum og lékum okkur í mótorkrossbraut í nokkra tíma. Síðan var keyrt heim á leið og magnaðri hjólaferð var lokið.

Nokkrar myndir frá sunnudeginum fylgja að neðan (frá Flickr).

Kiddi fastur

Kiddi fastur

Gunnar gomsar sig

Okkur til hryllings gomsaði Gunnsi sig við stinningsgeisp. Hann var fljótur til og greip í hnakkann á sér, kippti fast og náði að afgomsast fyrstur manna á Íslandi án hjálpar frá Óla lækni.

Gummi í brautinni 4

Gummi á flugi í brautinni

Gunnar í brautinni 28

Gunnar á flugi

Finnur í brautinni 9

Finnur á flugi

Mótorhjólaferð á Klaustur - Laugardagur

Helgina 15. - 17. maí fórum við félagarnir í mótórhjóla- og fjórhjólaferð. Ekið var til Kirkjubæjarklausturs á föstudeginum og hjólað allan laugardaginn og nokkra tíma á sunnudeginum.

Myndir frá laugardeginum eru komnar á Flickr myndasíðuna okkar.

Með í för voru:

Nafn Mynd
Gunnar aka dónakall Gunnar heimalingur 4
Finnur aka bambi Finnur
Kiddi aka vatnakötturinn Kiddi að undirbúa sig
Gummi aka múldýrið Gummi alvarlegi og mottan

Nokkrar myndir frá Flickr fylgja að neðan.

Kidd reddaði sér hliðarvagni

Pungarnir

Náttúrufegurð 1

Náttúrufegurð

Hvar er Gummi?

Wohin gehts das Gummi?

Bambast 15

Gunni að bambast

Bambast í braut 25

Finnur að bambast

Bambast í braut 18

Kiddi að bambast

Mögnuðum hjóladegi lokið

Hjóladagur að kvöldi kominn

Árshátíð saumaklúbbsins

Við höldum áfram að dæla myndum inn á Flickr. Ólöf og vinkonur héldu árshátíð saumaklúbbsins í mars á Tapas barnum og fyrir neðan fylgja nokkrar góðar myndir. Allt albúmið má finna á Flickr síðunni okkar.

Sætar á Tapas barnum

Sætar á Tapas barnum

og allir urðu hressari

Hressleiki í fyrirrúmi

and fresh :)

Sætar

Ó je!

Blue steel

Áramót 2001

Er að leggja lokahönd á myndir frá 2001. Albúmið er á Flickr síðunni okkar, en tvær góðar fylgja með fyrir neðan.

Áramótakoss

Áramótakoss - Gummi afi og Ásta Villa

Gummi sprelligretta

Tvítugur og fjallmyndarlegur

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook