Það var óskað eftir bumbumynd svo TaTa. Eins og þið sjáið þá fer það ekki fram hjá neinum að ég sé ólétt þessa dagana, ég er HUGE!

Við höfum verið á fullu undanfarið. Gummi kláraði síðustu kúrsana sína í síðustu viku á á bara eftir að klára smá vinnu fyrir einn prófessorinn.
Vörnin mín var svo í dag og því þungu fargi af mér létt, þó ekki bókstaflega eins og þið sjáið á myndinni
. Ég á því bara eftir að klára ritgerðina og þá verð ég líka búin, jeijeijeijeijeijeijeijeijeijeijei.
Framundan er svo útskriftin og erum við svo heppin að stór hluti af fjölskyldum okkar ætlar að mæta. Ef þau lesa þetta þá er kannski rétt að minna þau á að það er ekki seinna vænna en að fara að hækka erlendu heimildina á kreditkortunum
.
Svo þurfum við víst að fara að byrja að undirbúa komu frumburðarins. Mér skilst að 3 samfellur og 1 par af skóm sé ekki nóg
.
En talandi um skó, uppáhalds umræðuefnið mitt, þá verð ég að sýna ykkur bjútífúl skóna sem að ég var að enda við að panta. Þeir lofa þeim í hús fyrir 8. júní svo að þeir munu ná í hús fyrir flutninga.
Finnst ykkur þeir ekki flottir?
