May 2007

D.C. Beibí

Hellú pípols,Ég var að tjekka á dóti til að gera í Washington D.C og fann þennan fína rútutúr sem keyrir mann á markverðustu staðina þar sem maður getur hoppað út og tekið myndir og hoppað svo upp í næstu rútu. Á síðunni má sjá kort af leiðinni og fá svör við allskyns spurningum eins og hvar er best að leggja bílnum osfrv. Gjaldið er $25 á kjaft.Ég tjekkaði líka á síðunni hjá Smithsonian Institution og ég legg til að þið gerið það líka því það er svo svakalega mikið í boði. Leiter dudes.A to the diz

Project Finished

The project is now finished and the presentation slide show and the executive summary can be found in the project book. I had fun working on this with you guys.

Síðan loksins komin í lag

Tagged:  

Jæja, krakkapjakkar, síðan er loksins komin í lag. Það sem hefur verið að plaga hana undanfarið er uppfærsluvesen hýsingarfyrirtækisins. Þeir uppfærðu gagnagrunninn sinn (úr MySQL 4.0 í MySQL 4.1 fyrir áhugasama) og gerðu það svona agalega vitlaust (með tilliti til UTF-8 kóðunar, aftur fyrir áhugasama). Ekki tókst nú betur til en að þetta virkaði loksins eftir 7 enduruppsetningar af þeirra hálfu.

Vonandi er þetta allt komið í lag og við getum aftur farið að nota síðuna.

Það getur verið að einhver komment hafi ekki vistast í afriti fyrirtækisins þannig að ef þið voruð að játa ást ykkar á mér þá þurfið þið að smella því inn aftur (ég er að tala við þig Óli!).

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook