Við þykjum víst ekki nógu dugleg að skrifa hérna og fólk er meira að segja farið að skrifa um það á öðrum síðum. ![]()
Ætli að það sé ekki bara best að koma með eina allsherjar samantekt og byrjum á því nýjasta.
Það var kveikt á sumrinu fyrir helgi sem passaði akkúrat því að ég þurfti að skila inn heimaprófi á mánudaginn og þurfti að læra alla helgina. Sem betur fer var gærdagurinn frekar góður líka þannig að ég náði að brenna aðeins á öxlunum. JEI! Á meðan var Gummi inni að læra.

Síðasta miðvikudag skellti ég mér á tónleika í Boston. Doddi var með útskriftartónleika og þar sem að ég þurfti ekki að skila heimadæmum í fimmtudagstímanum þá var þetta alveg tilvalið. Ég mætti beint í lunch með Ásdísi, Dodda og foreldrum hans á Cheesecake Factory og svo skelltum við Ásdís okkur í eina, tvær búðir. Tónleikarnir voru auðvitað eins æðislegir og við var að búast og langt síðan ég hef séð jafn marga Íslendinga saman komna í langan tíma. Gaman gaman. ![]()
Takk aftur fyrir mig! Á meðan var Gummi heima að læra.

Miðvikudeginum þar á undan komu Brynja, Hinrik og Doddi hingað frá Boston. Brynja og Hinrik voru hjá Dodda og Ásdísi yfir páskahelgina og þau voru samferða Dodda hingað því að Doddi var að spila hér í nokkrum skólum. Brölluðum margt skemmtilegt saman svo sem, NY skoðunarferðir, verslunarferðir, töskukaup í Kínahverfinu, Pizza í Litlu Ítalíu, ostakaka í Soho, póker, klúrir grínklúbbar og margt fleira. Ekki má heldur gleyma að baðherbergisloftið hrundi ofan á Hinrik þegar hann var í sturtu, hressandi. Það var æðislegt að fá þau hingað og vonandi koma þau miklu miklu oftar. Ætti að vera auðveldara fyrir þau en flesta svo þau hafa enga afsökun! Gummi þurfti því miður að vera að læra mest allan tíman.


Á mánudeginum tveimur dögum áður fóru Kristján, Magga og Elísabet heim eftir æðislega heimsókn. Ég veit að ég sagði að Gummi ætlaði að skrifa um heimsóknina en þar sem hann er að læra þá ætla ég hér að stikla á stóru. Þau flugu hingað á fimmtudeginum rúmri viku áður og Kolla kom líka á föstudeginum. Á laugardeginum fórum við í bridal shower hjá tengdamömmu hennar Kollu í New Jersey. Ofboðslega gaman að upplifa svona ekta amerískt. Eftir boðið skelltum við okkur í Mall, versli versl. Hina dagana fórum þónokkrum sinnum að versla í Soho og á fleiri stöðum, fórum á Blueman Group, fórum á American Museum of Natural History geðveikt safn, fórum á comedy club, fengum Helga og Hildi í brunch, löbbuðum yfir Brooklyn Bridge, borðuðum pizzu á Grimaldi's, túristuðumst, Kristján fór á næstum öll söfnin hérna, Kristján og Gummi fóru á Allman Brothers Band tónleika, Magga kynnti sér slysavarðsstofu þjónustuna í hverfinu og svo margt margt margt fleira. Þar sem að það var "vorhlé" í skólanum okkar þurfti Gummi sem betur fer ekki að læra allan tímann.
Þessa stundina eru Gunnar og Þóra í Boston þar sem að Þóra er í vinnuferð. Á morgun ætlar Lára að fara með þau í Outlet að versla og svo ef að þau þurfa ekki að fara í kvöldverðarboð þá koma þau hingað annað kvöld og verða hérna allan föstudaginn. Gummi þarf víst að fara smá í skólann að hitta hóp í klukkutíma til að læra. Framundan eru svo 2 lokapróf hjá mér 8. og 10. maí og síðan koma mamma og Erlen 14. maí en ég á einmitt að skila af mér síðasta verkefninu fyrr um daginn.
Niðurstaða: það er búið að vera rosalega gaman hjá okkur, fullt af gestum og annað hvort er miklu meira að gera í skólanum hjá Gumma eða þá að ég er ekki að standa mig.
P.s. Allur þessi stafaruglingur á gömlu færslunum er tilkomin vegna þess að aðilarnir sem "hósta" síðuna okkar færðu hana og liggur vandamálið hjá þeim og þeir vita ekki alveg hvað er að.























