February 2007

Allt að gerast

Hér er sko búið að vera nóg að gera undanfarið. Smiling

Þann 16 komu Ásta Villa og Tanja, frænkur hans Gumma hingað til NY því að Ásta Vila var með bás á sýningu. Við Gummi fórum og hittum þær á bar sem heitir ONE Litle West á föstudeginum þar sem að við ætluðum að fá okkur kannski einn drykk með þeim. Þúsund drykkjum síðar og leigubílaferð sem að við borguðum víst aldrei tók við súrasti þynnkudagur ever. Ég ætla ALDREI að drekka aftur (í febrúar). Við fórum líka og kíktum á sýninguna á sunnudeginum sem var rosalega flott. Fullt af fatahönnuðum samankomnir undir einu þaki og allt geðveikt flott. Við sáum eina fræga gellu á svæðinu. Hver man ekki eftir Melrose úr síðasta Americas Next Top Model sem fór í taugarnar á öllum. Smiling Á miðvikudagskvöldinum fórum við svo á Sushi Samba þar sem við fengum eins og alltaf geggjað sushi. Ásta Villa fór svo heim á fimmtudeginum og Tanja gisti hjá okkur eina nótt áður en hún hélt áfram til Miami. Við Gummi erum að vonast til að geta heimsótt hana þar fljótlega.

Ásta Villa og Gummi

Tanja og Ólöf

Á föstudeginum komu svo Sólrún og Lee. Þau eru að fara í brúðkaup á Long Island næsta laugardag og verða hjá okkur fram á föstudag. Ég er búin að borða non stop síðan að þau komu. Mamma og Erlen sendu mér flatkökur, hangikjöt og nammi með henni og síðan kom Sólrún líka með nammi og ég missti mig alveg í áti. Á sunnudaginn fór ég með þeim og við skoðuðum efri hluta Manhattan. Fengum okkur að borða í Whole Foods, löbbuðum um Central Park, fórum á 5th ave., fengum okkur kakó í Donald Trump byggingunni og fórum á Times Square. Við Gummi þurftum svo að læra og fara í skólann í gær og í fyrradag en í dag ætlum við að fara að skoða Kínahverfið, Litlu Ítalíu og kíkja í nokkrar búðir.

Sólrún og Lee í Central Park

Sólrún og Lee

Um kvöldið var svo Óskarsverðlaunapartí hjá okkur þar sem við veðjuðum á úrslitin og vann Lee með yfirburðum. Í kvöld byrjar svo nýja serían í Americas Next Top Model með 2ja klukkutíma þætti sem að við Sólrún ætlum sko ekki að láta fram hjá okkur fara.
Á föstudaginn þegar þau fara yfir til Long Island þá ætlar Ásdís að koma frá Boston. Hún og Doddi fá víst ekki spring brake á sama tíma svo að ég verð svo heppin að fá hana til mín, veivei! Við ætlum að hafa það rosalega gott og jafnvel kíkja í H&M Eye-wink .

Já eitt sem að ég gleymdi að nefna. Á föstudaginn síðasta plataði ég Gumma með mér í Crate and Barrel þar sem að hann gaf mér kertarekka. Lára var með svoleiðis í stofunni sinni og síðan við fórum til Boston um daginn hefur mig langað í svoleiðis. Gummi handlagni skellti honum svo upp á vegg með vinstri og síðan þá er búið að vera svo kósí hjá okkur. Loksins loksins er komið eitthvað á stóra tóma stofuvegginn.

Nýi kertarekkinn

:Hún á afmæli í dag: Hún á afmæli Erlen Björk. Hún á afmæli í dag

Tagged:  

Fleiri afmæli. Smiling

Í dag á litla fallega uppáhalds systir mín afmæli.

Til hamingju með afmælið múslan mín. Sakna þín rosalega mikið.
Knús og kossar xxx

:Hann á afmæli í dag: hann á afmæli Gunnar, hann á afmæli í dag

Tagged:  

Til hamingju með afmælið lang besti bróðir í öllum heiminum geiminum.

Gunnar og Baltasar

Sakna þín!

Knús og kossar. Smiling

Love in the cold weather

Síðan er rauð í dag í tilefni Valentínusardagsins. Smiling

Það byrjaði að snjóa hérna í gær og þegar maður kveikir á sjónvarpinu er ekki fjallað um annað. Kennarinn minn í gær ítrekaði það aftur og aftur að keyra varlega á leiðinni heim. Gaman hvað það er mikið gert úr smá snjókomu. Lára var einmitt að segja mér að það er búið að aflýsa tímum eftir klukkan 4 í dag í skólanum hennar. Það er víst icestorm á leiðinni. Smiling

Gatan okkar þegar snjóaði síðast

Af okkur er annars ekkert að frétta, frekar rólegt þessa dagana hjá okkur. Við erum enn að reyna að koma okkur í læri-gírinn, ég er enn að gera öll heimadæmin á síðustu stundu og Gummi les fyrir tímana sína samdægurs. Mitt í þessum rólegheitum vorum við þó minnt á það að við búum í stórborg. Það var lögreglumaður skotinn í næstu götu við okkur fyrir nokkrum dögum. Mér finnst ég alltaf búa í svo öruggu hverfi og síðan sér maður svona í fréttunum.

Boston

Jæja ég ætlaði víst alltaf að segja frá Bostonferðinni okkar.

Við fórum á fimmtudagskvöldi og ákváðum að panta miða með rútu sem fór klukkan 21. Ég var í tíma til klukkan 20 og við álitum að klukkutími væri meira en nægur tími til að komast þangað og fá okkur að borða því að við þurftum aðeins að fara 2 stopp með lestinni. Gummi prentaði út kort hvernig við kæmumst frá lestarstöðinni að Fung Wah bus en það gekk ekki betur en svo að við gengum í vitlausa átt svo að við rétt náðum.Rútuferðin var ekki nema tæpir 4 tímar og svo komu Lára, Ásdís og Doddi að sækja okkur á rútustöðina.

Á föstudeginum fórum við öll í lunch á stað sem heitir Vox og við mælum ekki með. Mjög sérstakar samlokur á þeim stað. Síðan fórum við í langan göngutúr um Boston sem er æðisleg borg og skelltum okkur svo á skauta.

Skautadrottningar

Ég verð að viðurkenna að allir skauta-hæfileikarnir virðast hafa horfið á síðustu 12 árum. Við Ásdís vorum vanar að fara reglulega á skauta og gátum vel skautað hratt, farið í hringi og skautað afturábak. Þarna vorum við 12 árum síðar og vorum bara ánægðar að detta ekki. Gummi fær byrjendaverðlaunin fyrir sína takta og Lára, verðlaun fyrir bestu nýtinguna á einum hring.

Við Ásdís skelltum okkur svo "örstutt" í H&M á meðan Doddi, Gummi og Lára biðu okkar á nálægum bar. Einum og hálfum tíma síðar komum við Ásdís á barinn þar sem allir reyndust vera ansi hressir á 3. bjór. Við fórum svo á hinn margumtalaða Houstons þar sem að við fengum eitt besta kjöt sem að ég hef smakkað og ekki skemmdi fyrir að það voru franskar með, nammi namm.

Houstons

Þaðan fórum við heim til Ásdísar og Dodda og spiluðum póker fram á morgun. Fólk var mishresst en við náðum góðri pókeræfingu fyrir Vegas.

Gaman í póker

Á laugardeginum var fólk misglært en við fórum í Omni theater í Museum of Science, www.mos.org, þar sem við sáum mynd um Alaska. Omni bíóið er svona hálfkúla sem að þú situr inní þannig að maður fékk nokkurs konar þrívíddar-tilfinningu. Ég fékk allavega í magan þegar "myndavélin" flaug fram af háum klettum. Mér fannst þetta alveg geggjað og ég er búin að segja Gunnari bróður að hann og Þóra verði að fara þangað þegar þau fara til Boston í apríl.

Um kvöldið fórum við svo á æðislegan stað sem heitir Cuchi Cuchi. Þar fær maður smárétti borna fram af þjónustustúlkum sem eru klæddar í sitt fínasta púss með hatta og hárskraut, nokkurs konar leikhúsfílingur.

Búnar að dressa okkur upp fyrir Cuchi Cuchi

Eftir smá rúnt um Boston fórum við svo öll heim til Láru þar sem við spiluðum aðeins meiri póker en þar sem sumir voru enn eftir sig frá því kvöldinu áður þá fórum við ekki seint í rúmið.

Á sunnudeginum fórum við í lunch á Cheesecake Factory með Láru, Ásdísi, Dodda og Möggu. Club samlokan sé ég pantaði mér dugði sem hádegismatur handa mér og kvöldmatur handa mér og Gumma í rútunni á leiðinni heim. Við fórum svo til heim til Dodda og Ásdísar í pönnukökur og road-tripp pælingar. Á leiðinni þangað stoppuðum við aðeins heima hjá Möggu, Gumma og Hrafnkeli. Ég geri mér alltaf grein fyrir því hvað tíminn líður hratt þegar ég sé hvað börn hafa stækkað. Fyndið hvað allir eldast en ég er alltaf bara tvítug.

Hrafnkell dúlla

Ásdís pönnukökumeistari

Road trip pælingar

Þetta var æðisleg ferð, Boston er geggjuð borg, voða hrein og fyndið að við fengum það á tilfinninguna að hún væri lítil. Lára hugsaði voða vel um okkur og við þökkum enn og aftur fyrir það.

Tölvuleikir bæta sjón

Tagged:  

Rannsóknir á vegum háskólans í Rochester, Bandaríkjunum, hafa leitt í ljóst að spilun hasartölvuleikja bætir sjón. Þessar niðurstöður styrkja fyrri rannsóknir sama skóla á sjón og tölvuleikjum.

Ég vissi það! Mér fannst ég alltaf sjá betur með hverju árinu sem leið...

Þessi færsla er í boði mömmu og tengdamömmu.

Burr

Tagged:  

Jæja þá erum við komin aftur heim eftir æðislega ferð til Boston.
Á móti okkur tók þvílíkur kuldi en núna er -12°C sem "feels like" -21°C og í fréttum er talað um deadly cold. Ég ætla ekki út fyrr en ég þarf að fara í skólann.
Núna þarf ég að gera fullt af heimadæmum fyrir skólann í kvöld og morgun og þegar ég er búin með þau þá mun ég setja inn ferðasöguna og myndir.
Over and out

Boston

Þessa stundina sit ég heima hjá Láru og blogga frá Boston. Við Ólöf tókum Fung Wah rútu frá Kínahverfinu í New York til Kínagötunnar í Boston. Farið kostar ekki nema $15 dollara á mann og rúturnar eru fínar.

Vorum að vakna og erum að fara í hádegismat með Láru, Dodda og Ásdísi. Verðum hér fram á sunnudag (sem er "Superbowl Sunday" hér úti). Ferðasaga kemur á mánudag.

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook