November 2006

Howdy

Við erum nú ekkert sérstaklega dugleg að blogga hérna og en vonandi fyrirgefið þið okkur það.

Gummi á leiðinni heim á djamminu - eina myndin sem við tókum þetta kvöldið

Næst ber að nefna Thanksgiving eða Þakkargjörðarhátíðina sem var síðasta fimmtudag. Kolla og Steven komu til að vera hjá foreldrum hans og við fórum þangað líka. Daginn áður, á miðvikudaginn, skellti Steven sér á skeljarnar og nú stefnir allt í sumarbrúðkaup á Íslandi, gaman gaman. Smiling

Fjölskyldan hans Stevens tók rosalega vel á móti okkur og maturin var geggjaður. Við mættum nánast beint í matinn og síðan spiluðum við fram á kvöld. Ég komst í jólafíling við þetta og núna eru bara 23 dagar í að við komum heim JEI. Smiling

Steven og Kolla

Nýtrúlofaða parið

Við fengum líka loksins sófaáklæðið á sófan okkar. Það átti að vera komið 3 vikum eftir að við keyptum sófann en það endaði með því að við gátum pantað helminginn 10 vikum seinna og Kolla keypti hinn helminginn í Chicago. Síðan áttum við alltaf eftir að kaupa sófaborð þar sem við ákváðum að panta það með áklæðinu. Það kom í gær nokkrum dögum á eftir áklæðinu og auðvitað þurfti það að vera laskað. Kassinn sem það var í var límdur saman eftir að hafa greinilega rifnað og síðan var honum pakkað í bubble-plast og svo annar rifinn og límdur kassi utan um það. Þannig að miðað við fyrri reynslu þá vissum við það strax að það væri ekki eins og nýtt. Þeir höfðu samviskusamlega hamrað inn öll 4 hornin á borðplötunni. Gummi hringdi í vini sína í þjónustudeildinni og þar fékk hann þau svör að þetta væri frekar algengt hjá þeim(really) og að þeir myndu bara senda okkur nýtt. Fyndna var að þeir vilja ekki hitt borðið til baka, ekki það að þeir geti eð notað það, þannig að við settum það bara saman og ætlum að notast við það þangað til að hitt kemur.

Horn á borði

Nýja borðið, sést smá í sófaáklæðið og leggina hans Gumma

Talandi um að panta hluti á netinu þá keypti ég mína fyrstu skó á Zappos. Nú verður sko ekki aftur snúið, næst er að reyna ebay. Lára átti í rosabaráttu á ebay fyrir nokkrum dögum og Íris er mesti "ebay snillingur" Eye-wink sem sögur fara af og þar sem þær koma hingað eftir ca 10 klukkutíma þá gæti það bara verið fljótlega.

Ég ætti kannski að fara að sofa til að vera hress þegar þær mæta á svæðið. Það er svo mikið að gera hjá Gumma núna að hann lærir fram á nætur og ég hangi bara í tölvunni og horfi á sjónvarpið á meðan. Fatta stundum ekki að ég geti farið að sofa.
Góða nótt

Púsli púsl

Eitt sem að mér finnst skrítið hérna er að nú eru laufblöðinn öll að fljúka af trjánum en samt er 15°C úti.

Þegar laufin fóru að verða rauð þá fórum við í göngutúr um Prospect Park og síðan þá hefur mig langað þvílíkt að fara að púsla. Svona haustliðuð tré minna mig alltaf á það þegar við Erlen vorum að púsla í sveitinni með Gyðu.

Síðan þá hef ég bara púslað eitt púsl og það tók mig 2 ár. Það var frekar erfitt en það voru margar langar pásur teknar.

Gummi í garðinum

Það er annars ekkert að frétta af okkur. Dagarnir renna svolítið saman í eitt þegar maður er bara heima að læra alla daga. Við erum reyndar að reyna að mæta oftar í ræktina, hingað til höfum við verið svona styrktaraðilar frekar en meðlimir. Ég dró einmitt Gumma fram úr rúminu fyrir allar aldir í morgun, hálf 9 ( Smiling ), til að fara þangað.

Við erum alltaf að reyna að fara fyrr á fætur en þegar maður er í skólanum á kvöldin þá er ekkert sem rekur mann á lappir.

Annars var ég bara í þessum skrifuðu orðum að fá það staðfest að Lára og Íris ætla að koma til mín eftir 2 vikur. Íris er á leiðinni heim eftir djammdvöl í LA og Lára fær smá frí fyrir lokapróftörnina. Ohh það verður svo gaman hjá okkur. Kannski kemur ein enn en það á eftir að koma betur í ljós.

Held að það búi steppdansari á hæðinni fyrir ofan okkur, brjáluð læti í þeim í allan dag. Voða fínt þegar maður er með hausverk.

Heimsókn á enda og hversdagsleikinn tekinn við

Tagged:  

Jæja þá eru Erlen og Kiddi farin. Sad
Þau komu á föstudaginn síðasta og fóru í gær.

Við vorum rosalega dugleg að skoða okkur um og versla. Á laugardeginum byrjuðum við á því að fá okkur brunch á dinernum á horninu. Pönnukökurnar og ommeletturnar klikka aldrei og það sem mér finnst alltaf best eru frönsku kartöflurnar, namminamm. Ætli ég verði einhverntíman það fullorðin að franskar verði ekki lengur uppáhalds?

Á þessum 5 dögum fórum við í hestvagn í Central Park, skoðuðum Ground Zero, fengum okkur besta ís í heimi í China Town, borðuðum pizzu í Litlu Ítalíu, versluðum í Soho, fórum upp í Empire State, klipum í rassin á Beyonce í Madame Tussauds vaxmyndasafninu, fórum aftur og aftur í 3 H&M búðir, spókuðum okkur á Times Square, fórum í geðveikis dótabúðir og löbbuðu það mikið að mig verkjaði í lappirnar.

Annars er svo sem ekkert að frétta. Við erum bara að læra læra og núna er ég byrjuð að telja niður dagana í að við förum heim. Bara 43 dagar, vei vei, Smiling

Eftir ca 2 vikur er svo Thanksgiving og þá koma Kolla og Steven til New York eða nánar til tekið New Jersey þar sem foreldrar hans búa. Foreldrar hans voru svo indæl að bjóða okkur í mat, svo að við fáum að upplifa alvöru thanksgiving máltíð. Svo fáum við jafnvel gesti í vikunni þar á eftir, en það er ekki enn komið á hreint. Ég ætla að skella inn nokkrum myndum frá síðustu dögum núna og svo ætla ég að njóta þess að liggja upp í sófa og horfa á Breakfast at Tiffany´s.

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook