October 2006

Fyrsta Gummaplogg

Sæl öllsömul.

Loksins, loksins, fyrsta ploggið mitt. Ég hef þá áráttu að vilja helst ekki plogga nema að ég hafi e-ð merkilegt að segja. Því læt ég nú staðar numið og vísa heldur í ástæðuna fyrir því hvers vegna ég hef hvorki ploggað reglulega né klárað meistaraverkefnið mitt við HÍ:

http://en.wikipedia.org/wiki/Procrastination:

The Tense-Afraid Type of procrastinators would usually feel "overwhelmed with pressure, unrealistic about time, uncertain about goals" and many other negative feelings. This person would therefore feel they are lacking some ability to do this work, and would try to escape this stress by relaxing. This temporary escape would then fall away, leading to an even more stress to this over-worked person. This would lead to this person feeling guilty, and therefore more apprehensive. It can also have a debilitating effect on their personal life and relationships. Since they are uncertain about their goals they can often feel awkward when with people who are confident and self-aware; in turn they can often fall into depression. They tend to withdraw from social life and they may often avoid contact, even with close friends.

...og fyrir meistaraverkefnið, http://en.wikipedia.org/wiki/Academic_procrastination:

The situation is worse at the graduate level, where the conditions are perfect for procrastination-intangible mental work with flexible deadlines and unclear goals.

Gleði, gleði...

Ég hef þó verið ansi duglegur undanfarið og hef þá aðallega verið að dúllerast í:

  • Námskeiðum í skólanum. Þau eru þrjú talsins, "Marketing", "Entrepreneurship" og "New Product Management". Af þeim er "New Product Management" langsamlega besta námskeiðið. Ástæðan fyrir því er mjög góður kennari.
  • Rannsóknarverkefni fyrir Dr. Bharat Rao. Það er enn að fæðast hjá okkur en það mun fjalla um ný fyrirtæki og tækifæri sem hægt er að flokka undir þann breiða hatt: "Web 2.0".
  • Vinnuverkefni fyrir skrifstofustjóra Management deilarinnar við Polytechnic University. Ég á að skrifa PHP forrit fyrir ýmis "verkflæði" í umsóknarferlinu og meðhöndlun framhaldsnema við deildina. Eins og rannsóknarverkefnið þá er verkefnið á byrjunarstigi.
  • Vinna fyrir Netið við síðurnar www.veitingastadir.is>/a> og www.visitorsguide.is.
  • Meistaraverkefninu mínu. Nuff' said.
  • Uppsetningu þessarar síðu. Loksins, loksins lærði ég almennilega á Drupal. Kannski plogg eða grein um það síðar.
  • Uppsetningu tölvunnar minnar. Setti hana upp með klofinn persónuleika, Gentoo Linux og Windows XP. Margt sniðugt við Gentoo-inn, einna helst [Varúð, tölvmál!] emerge. Vonandi sérgrein um þetta síðar.
  • Flytja til Bandaríkjanna, finna íbúð, kaupa rúm, kaupa húsgögn, kaupa tölvu fyrir Ólöfu, kaupa sjónvarp, byrja að æfa, hýsa Ásdísi og Dodda í nokkra dýrlega daga, læra hvar á að versla í Brooklyn, vaska upp, ryksuga og fara allt of seint að sofa.

Annars er það í fréttum að ég sakna ykkar og má þá sérstaklega nefna föstudagshádegismat hjá Svölu ömmu.

Allir [sem ég þekki] eru velkomnir í "unaðsheimsókn um dýrðir Nýju Jórvíkur" (TM).

Bang & Olufsen

Tagged:  

Þegar við Gummi vorum tiltölulega nýkomin til New York fórum við í ansi marga verslunarleiðangra til að kaupa húsgögn og aðrar nauðsynjar. Í einni ferðinni þegar við vorum að leita af sófaborði, sem við erum ekki ennnnnnnn búin að fá okkur, rákumst við á þetta gamla Bang & Olufsen útvarp sem er nákvæmlega eins og útvarpstækið í sumarbústaðnum hjá pabba og mömmu. Þetta var í risastórri búð sem seldi vandaðar dýrar gamlar vörur og kostaði útvarpið $500. Þannig að pabbi, þú átt sem sagt útvarpstæki sem þykir rosalega töff hérna í NY. Smiling

Bang & Olufsen útvarp

Jæja jæja loksins loksins

Síðan síðast þá er ég búin að fara í 2 próf, það seinna núna í kvöld og það gekk bara ágætlega í þeim báðum.

Þegar ég gekk út úr prófinu áðan var ég bara frekar ánægð með sjálfa mig. Gekk spert eins og hani og hugsaði SKO MIG. En svo þurftu þeir endilega að gefa manni lausnirnar í dyrunum. Ekki lengur svo ánægð með mig en þetta gekk samt ágætlega. Gerði annað dæmið alveg rétt en í hinu gleymdi ég að deila með 3 sem hafði keðjuverkandi áhrif út dæmið. Nú er bara að bíða og sjá hvernig kennarinn gefur fyrir.

Það er annars búið að vera frekar rólegt hjá okkur. Við höfum bara verið að læra, horfa á sjónvarpið, læra og já læra. Þar sem að ég er Íslendingur og dóttir föður míns þá er ekki úr vegi að ræða aðeins um veðrið. Það var eins og slökkt á væri hitanum allt í einu. Það var sól og rúmlega 20 stiga hiti einn daginn og síðan var það bara allt í einu búið og ógeðslega kalt. Samkvæmt veðurspánni eru 10-14 gráður úti þessa dagana en ég get sagt ykkur að það er kjaftæði. Allavega er þá rakinn að hafa mikil áhrif því að heima þarf maður ekki að vera með vettlinga í 10 stiga hita.

Við komumst líka að því að við ákveðum ekki sjálf hvenær við kyndum kofann. Það er víst orkufyrirtækið sem ákveður hvenær sé hentugt að byrja að kynda allt húsið. Það var skítkalt hérna inni í tæpa viku og ég sat með sultardropa í flíspeysu og lopapeysu við lærdóminn. Við vissum ekki af þessu með hitann svo við reyndum fyrst að kveikja á ofnunum með því að skrúfa frá þeim öllum. Síðan þegar þeir kveiktu á hitanum þá vorum við heppin að vera heima. Þvílík læti! Það er ventill á ofninum í svefnherberginu sem flautaði gufu og við rétt náður að bjarga sjónvarpssnúrunum frá því að bráðna fastar við stofuofninn.

Ég er annars farin að fatta það betur að allt heldur áfram án mín heima. Litli frændi minn Baltasar er víst komin með 4 tennur og er farin að standa upp á milli þess sem hann skríður eins og herforingi. Eina vandamálið er víst að hann nær núna ofan í blómapottinn og honum finnst moldin góð. Smiling
Læt fylgja 2 myndir af guttunum mínum sem Erlen sendi mér.

Baltasar
Helgi Valur

Framundan er svo próf á mánudaginn og svo koma Erlen og Kiddi 3 nóv. Ég hlakka svo til að fá þau hingað. Hver veit nema að ég skelli mér í verslunargírinn með þeim og byrji að kaupa jólagjafir. Það er allavega farið að selja jóladót í Target og Gummi er farin að flauta jólalög.

Annars á amma mín afmæli í dag og vil ég bara enda á því að óska henni aftur til hamingju með daginn.

Til hamingju með afmælið!

Í dag á mamma mín afmæli og það á að vera að vera kökuboð heima í kvöld. Ég verð að viðurkenna að ég er með smá heimþrá núna. Sé fjölskylduna fyrir mér, með kveikt í arninum og fullt af kökum og heitum réttum. Vildi að ég gæti skotist heim í smá stund.

Við vorum minnt á það áðan hvað við búum í stóru ríki. Það er farið að kólna aðeins hérna og þegar við fórum á fætum vorum við að tala um það að það væri nú kannski komin tími á það að kveikja á ofnunum. Síðan fer ég á mbl og fyrsta fréttin er:
Fjöldi fólks rafmagnslaus vegna mikillar snjókomu í New York ríki. Hérna er nefnilega fallegasta veður, 10°C og sól.

Núna á ég líka tölvu...

Tagged:  

... þannig að núna sitjum við Gummi hérna í sitt hvorri tölvunni og með sjónvarpið líka í gangi. Ætli þetta endi með því að við tölum saman á msn-inu hérna heima? Kemur í ljós:)

Ásdís og Doddi komu í heimsókn til okkar núna um helgina eins og ég minntist á fyrr. Þau komu á fimmtudaginn og fóru núna í kvöld. Við vorum mjög dugleg að fara út og sáum meira af NY á þessum 5 dögum heldur en alla hina dagana samanlagt.

Við fórum á föstudaginn í Kínahverfið, Soho og Tribeca. Ætluðum líka í Litlu Ítalíu en okkur tókst að labba fram hjá henni. Það var alveg hrikalega kalt þann daginn þannig að við löbbuðum frekar rösklega og ég var gjörsamlega búin í löppunum í lok dagsins. Við enduðum á því að fara á MOMA safnið (The Museum of Modern Art) og þrátt fyrir að við værum þar í dágóðan tíma náðum við einungis að sjá hluta af safninu þannig að við munum reyna að fara þangað fljótlega aftur. Um kvöldið fórum við svo á The Improv Comedy Club þar sem við Ásdís fengum allra verstu strawberry daiquiri sem gerðir hafa verið. Hverjum dettur í hug að nota niðursoðin jarðaber í daiquiri?

Á laugardaginn byrjuðum við daginn á staðgóðum hádegismat sem samanstóð af amerískum pönnukökum, kanilsnúðum og beikoni. Síðan fórum við Ásdís í smá verslunarleiðangur á meðan strákarnir spiluðu pool. H&M stóð fyrir sínu en ekki voru keyptir skór í þessari verslunarferð. Um kvöldið elduðum við Ásdís enchiladas og bökuðum brownies og síðan átum við öll svo hrikalega yfir okkur. Enduðum kvöldið svo með póker.

Á sunnudaginn fórum við á Broadway að sjá Spamalot sem er leikrit sem byggt er á verkum Monty Python. Gummi vill taka það fram að þetta sé eitt skemmtilegasta leikrit sem að við höfum séð þannig að Kolla, þú átt endilega að fara að sjá þetta þegar þú kemur næst Smiling Eftir það fórum við svo á Sushi Samba en við fórum einmitt þangað með Dodda, Ásdísi, Kollu og Steven þegar við vorum hérna í fyrra og maturinn var alveg jafn góður, nammi nammi nammmmmmmmm.

Í morgun fórum við Ásdís svo í Sex and the City túr þar sem að við fórum í rútu á milli staða í borginni þar sem atriðin voru tekin upp. Túrgædinn var einmitt svo indæll að benda okkur á búð sem að selur merkjavörur með mjög góðum afslætti og þó að við næðum ekki að fara þangað í dag þá er nokkuð ljóst að ég dreg Gumma með mér þangað við fyrsta tækifæri. Ég verð nefnilega að fara að skoða hana áður en Erlen og Kiddi koma. Smiling Þau eru nefnilega búin að bóka miða og munu koma hingað til okkar 3. nóvember, vei vei vei Grin

Það er rosalega gaman að lesa kommentin frá ykkur og sjá hverjir lesa bloggið okkar svo endilega haldið áfram að kommenta.

Halló halló

Jæja jæja.

Loksins er síðan tilbúin og myndir komnar inn á hana. Gummi er búinn að sitja sveittur við tölvuna kvöld eftir kvöld við að koma henni í loftið og TA TA hér er hún. Við mælum með að ef að þið eruð með Mozilla vafrann að þið skoðið síðuna í honum því að hún er ekki alveg eins fin í Explorer. Gummi setti svo inn voða fínan fídus á myndasíðuna sem virkar þegar þið veljið slædsjóv fyrir neðan myndirnar. Hann er svo flinkur drengurinn!

Við erum annars búin að koma okkur ágætlega fyrir. Eigum enn eftir að kaupa sófaborð og setja e-ð á veggina en þar sem að við erum LOKSINS komin með nettengingu og sjónvarp þá er orðið mjög heimilislegt að okkar mati. Eins og þeir sem þekkja okkur vita þá er það eina sem ég þarf er sjónvarp og eina sem Gummi þarf er nettengd tölva.

Skólinn er svo byrjaður á fullu. Við erum alltaf í tímum á kvöldin, annars vegar frá 6:00-8:15 eða 8:20-10:35. Við tökum bæði 3 kúrsa og okkur tókst báðum að velja kúrsa þannig að við erum í skólanum mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga. Ég átti í smá erfiðleikum með að velja kúrsa þar sem að þeir kenna ekki svo marga Power System kúrsa og síðan eru nokkir skyldukúrsar og þeir sem mig langaði að taka voru allir kenndir á sama tíma. Ég endaði á því að velja:

  • Power System Analysis sem er grunnkúrs og ágætis upprifjun.
  • Probability sem er einn af skyldukúrsunum sem ég mátti velja um og þar sem líkindareikningur hefur aldrei verið mín sterka hlið þá fannst mér frekar sniðugt að taka þann kúrs, sjáum til hvort að mér finnist það enn sniðugt í lok annar.
  • Relay Fault Protection sem er frekar erfiður og ég hafði aldrei hugsað um að taka svoleiðs kúrs en tímarnir hafa verið mjög fínir hingað til og kennarinn er bara of næs.

Gumma kúrsar eru:

  • Marketing
  • Entrepreneurship & New Venture Creation.
  • New Product Development.

Ég veit í rauninni ekki meira um kúrsana hans en hann er að ég held frekar ánægður með þá.

Ásdís og Doddi eru svo að koma í heimsókn til okkar á fimmtudaginn og ég hlakka svo til. Við ætlum að fara í leikhús og sjá Spamalot og svo ætlum við Dísa að skella okkur í Sex and the City túr. Hver veit svo nema að við kíkjum kannski í eina eða tvær búðir. Ég veit ekki hvort að þið trúið því en ég hef ekki stigið fæti inn í eina skóbúð og hef ekki keypt mér eitt einasta fat. Meira að segja Gummi er farin að tala um að ég verði að fara að kaupa mér e-ð og yfirleitt þarf ég ekki hvatningu.

Ætli þetta sé ekki orðin nógu löng færsla svo bæ í bili.

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook