Var að klára að horfa á Ísland-Danmörk í HM í handbolta. Við töpuðum með einu marki eftir stangarskot á síðustu sekúndum leiksins. Ekkert dæmigert! Búhú. Sit hérna og mig langar mest að gráta. Þetta var allavegana góður leikur og "strákarnir okkar" stóðu sig feykivel. Magnaðar skyttur hjá Dönunum. Samt svekkjandi.

Comments