Bara stutt núna.
Í þessum skrifuðu orðum er verið að byrja að hlaða bílinn og við erum að fara að leggja af stað frá Albuquerque og ætlum við að keyra til Moab og er það um 6 tíma keyrsla. Á morgun ætlum við svo að fara í fjórhjólaferð um Moab eyðimörkina.
Á kortinu hér að neðan er hægt að sjá ferðina hingað til.













