Bíltúr um Bandaríkin, dagur átta: Amarillo og bíltúr til Albuquerque

Uppskrift að hressleikaköku:

  • Eitt vakn á hóteli í Amarillo.
  • Dass af nýkeyptum kúrekahöttum úr ferskri kúrekabúð, helst "Cavender's Boot City".

  • Einn og hálfur klukkutími af hádegismat á mexíkóskum veitingastað. Notist við "On the Border" fyrir viðbættan hressleika. Ef mögulegt, bætið við andfúlri, en þó indælli afgreiðslukonu.
  • Þrjú guacamole hrærð saman við limesafa, lauk og jalapeno.

Einn "Wiener Wagon".

  • Hálft til heil tylft af hálftímum á leikjastað. Best er að blanda saman í eina leikjakássu:
  • 12 hringir af hægu Go-Karti. Mjög mikilvægt er að biðja um mishraða bíla. Fyrir þolinmóða má ná einni magnaðri mynd af Nínu í Go-Karti.

  • Hringur af mini-golfi.

  • A.m.k. ein umferð af hafnaboltaleik með kastvél (e. Batting Cage) fyrir hvern einstakling. Hægt er að krydda leikinn með missterkum köstum eftir smekk einstaklinga. Rannsóknir hafa sýnt að estrógenhafar velja oft "Slow Softball" á meðan bragðlaukar stælgæja hneigjast í átt að "Very Fast Baseball". Gott er að láta Ólöfu bæði vera ansi færa með kylfuna og fara næstum því í splitt þegar hún slær.

  • Bjánalegum stappleik.
  • Gott er (en þó ekki nauðsynlegt) að bæta við ljúfum þjónustustúlkum sem eru ekki beint björtustu perurnar í skúrnum.
  • Stappið þessu öllu saman við u.þ.b. fimm til sex tíma keyrslu frá Amarillo til Albuquerque, hræódýrum mótelum með táneglur í teppinu, Pizza Hut og Taco Bell í kvöldmat, "The Breakfast Club&" í sjónvarpinu og svefni.

Comments

Hæ elskurnar mínar Það er æðislegt að fylgjast með ykkur. Frábær síða hjá ykkur þetta er snilld eins og unglingarnir segja. Ótrúlegt að fylgjast með ferðinni ykkar . Afi og amma hafa séð hana og eru yfir sig hrifin. Við bíðum spent efit að fá ykkur heim en skemmtið ykkur vel og bið að heilsa öllu þessu frábæra fólki sem er með ykkur. knús mamma magga 
Gaman að sjá þig kommenta á síðuna. Takk fyrir að fylgjast með.
n/a
Alltaf man ég eftir e-m mjög fyndnum úr saturday night live, sem talaði með útlenskum hreym um það að "baseball has been berry good to me". mer finnst þetta alltaf svo fyndið, ég veit að enginn skilur það. En að sjá Ólöfu up for bat kom þessu hugarflugi af stað. Ef þið viljið heyra góðan brandara þá: Af hverju fékk Dorrit íslenskan ríkisborgararétt? Af því að hún rímar svo vel við forrit! Gaman að fylgjast með ferðalagi ykkar. Hvernig heimurinn er orðinn, þetta er eiginlega ferðalag í beinni útsendingu. Kveðja, pabbinn 
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook