Ég er að vinna í síðunni þessa dagana, kemst ekki almennilega í það fyrr en eftir þriðjudaginn. Fyrir forvitna þá tókst mér að uppfæra síðuna án þess að færa gamla efnið yfir á nýju síðuna þannig að ég fer í það næstu daga að flytja allt yfir. Það er því mjög líklegt að gamlar færslur birtist á síðunni auk þess sem þið gætuð orðið var við breytingar á útliti og virkni. Endilega vælið í kommentum ef eitthvað pirrar ykkur.
Annars sýnist mér ég einungis vera í tímum á mánudögum og þriðjudögum. Ef það er ekki sætur anall...
Smá veþen
By gjk - January 30th, 2007
Tagged:

Comments
- Mér finnst þetta gaman. Þó að ég sé opinberlega hættur í vefforritun þá finnst mér gaman að setja upp mitt eigið kerfi. Það gefur mér líka tækifæri á að skoða hvernig alvöru kerfi eru forrituð. Ég hef líka lært svo mikið á að setja þetta upp.
- Ég hef skoðað nokkur blogkerfi og ég fann fá sem mér fannst sérstaklega merkileg.
- Það tók mig undir 3 mínútur að setja upp Drupal! Þá er ég ekki að ýkja, þetta er merkilega auðvelt. Að sjálfsögðu tekur það mig meiri tíma ef ég vil setja upp fleiri fídúsa, en það er yfirleitt undir 10 mínútur hver fídus. Nýjasti Captcha fídusinn tók mig t.d. um 10 mínútur að setja upp. Af þeim 10 mínútum eyddi ég a.m.k. helmingnum í að lesa mér til um hann af því að ég vil lesa mér til um þessa fídusa áður en ég byrja að nota þá.
- Ef ég vil e-n tíma gera meira með síðuna þá á ég eftir að raka á mér lappirnar af gleði að ég skyldi hafa valið skalanlega lausn til að byrja með. Skalanlega lausn sem er m.a.s. ekkert mikið tímafrekari í uppsetningu en að skrá sig á venjuleg blogg. Mestur tími hjá mér með fyrri síðu var að ég var að leika mér að hanna útlitið sjálfur. Það geri ég ekki núna. Dæmi um síður sem nota Drupal má finna t.d. í kynningu á Drupal 5.0, en þar eru t.d. síður eins og MTV, The Onion og NASA.
Örlítið lengra svar en ég ætlaði mér (upphaflega ætlaði ég einungis að lýsa yfir sakleysi Ólafar). Fyrir áhugasama um Drupal þá bendi ég á kynningarmyndband sem og heimasíðuna sjálfa: Drupal.