Tilraun númer tvö

Eftir ansi misheppnaða tilraun hjá okkur Ólöfu að halda út bloggi þá höfum við ákveðið að reyna aftur. Í því skyni ákvað ég að uppfæra kerfið og setja það upp á nýtt. Ég setti upp skínandi nýtt Drupal 5.0 og ákvað að nota glænýja Garland þemað (e. Theme). Þemað, eða sniðmátið, hefur ýmsa æði svala fítusa eins og javascript "color picker" sem leyfir manni að velja alla litina sjálfa á admin stillingum á síðunni og mixa með myndir án þess að nokkurn tíma þurfa að fikta í HTML, PHP, Javascript eða Stylesheet skjölum.

Af hverju skipti ég? Gamla síðan var ekki alveg að virka. Sumir kvörtuðu yfir því að hún væri hæg, aðrir að sniðmátið kæmi illa út á óæðri vöfrum (þ.e. IE, það er djöfulsans erfiðara að hanna síður fyrir vafrann) og síðan hafði einnig aðrar smávægilegar villur. Ég komst sem sagt að því að ég er ekki góður vefhönnuður. Ekkert sem kemur á óvart þar.

Ég ætla að byrja með síðuna hráa alveg eins og hún kemur úr boxinu og vinna rólega í henni þegar ég hef tíma. En nú ætla ég að reyna að skrifa reglulega og um allt og ekki neitt. Endilega vælið á síðunni (þ.e. þið þrjú sem lesið hana) ef e-ð er að eða ef eitthvað mætti gera betur. Ég skal hlusta, ég lofa...

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook