Lagaði myndadótið

Jó, biddsjes. Ég lagaði myndadótið sem Lára átti í vandræðum með (ég gleymdi að gefa venjulegum notendum leyfi til að setja inn stórar myndir). Núna virkar þetta þannig að þegar þið setjið inn mynd þá er gerð minni mynd sjálfkrafa sem passar inn í svæðið á vefsíðunni. Sú mynd hefur sama heiti og upprunalega myndin með viðbættu "_0". Þ.e. ef upprunalega myndin heitir Hundur.jpg þá heitir minnkaða myndind Hundur_0.jpg. Ef þið viljið síðan hlekkja á stóru myndina þá notið þið hlekktakkann (sama og þið notið til að gera hlekki) til að hlekkja á upprunalegu myndina. Ég er líklega ekki nógu skýr hér, en ég er alltaf tilbúinn að veita hjálp í gegnum síma.  
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook