Allt að gerast

Hér er sko búið að vera nóg að gera undanfarið. Smiling

Þann 16 komu Ásta Villa og Tanja, frænkur hans Gumma hingað til NY því að Ásta Vila var með bás á sýningu. Við Gummi fórum og hittum þær á bar sem heitir ONE Litle West á föstudeginum þar sem að við ætluðum að fá okkur kannski einn drykk með þeim. Þúsund drykkjum síðar og leigubílaferð sem að við borguðum víst aldrei tók við súrasti þynnkudagur ever. Ég ætla ALDREI að drekka aftur (í febrúar). Við fórum líka og kíktum á sýninguna á sunnudeginum sem var rosalega flott. Fullt af fatahönnuðum samankomnir undir einu þaki og allt geðveikt flott. Við sáum eina fræga gellu á svæðinu. Hver man ekki eftir Melrose úr síðasta Americas Next Top Model sem fór í taugarnar á öllum. Smiling Á miðvikudagskvöldinum fórum við svo á Sushi Samba þar sem við fengum eins og alltaf geggjað sushi. Ásta Villa fór svo heim á fimmtudeginum og Tanja gisti hjá okkur eina nótt áður en hún hélt áfram til Miami. Við Gummi erum að vonast til að geta heimsótt hana þar fljótlega.

Ásta Villa og Gummi

Tanja og Ólöf

Á föstudeginum komu svo Sólrún og Lee. Þau eru að fara í brúðkaup á Long Island næsta laugardag og verða hjá okkur fram á föstudag. Ég er búin að borða non stop síðan að þau komu. Mamma og Erlen sendu mér flatkökur, hangikjöt og nammi með henni og síðan kom Sólrún líka með nammi og ég missti mig alveg í áti. Á sunnudaginn fór ég með þeim og við skoðuðum efri hluta Manhattan. Fengum okkur að borða í Whole Foods, löbbuðum um Central Park, fórum á 5th ave., fengum okkur kakó í Donald Trump byggingunni og fórum á Times Square. Við Gummi þurftum svo að læra og fara í skólann í gær og í fyrradag en í dag ætlum við að fara að skoða Kínahverfið, Litlu Ítalíu og kíkja í nokkrar búðir.

Sólrún og Lee í Central Park

Sólrún og Lee

Um kvöldið var svo Óskarsverðlaunapartí hjá okkur þar sem við veðjuðum á úrslitin og vann Lee með yfirburðum. Í kvöld byrjar svo nýja serían í Americas Next Top Model með 2ja klukkutíma þætti sem að við Sólrún ætlum sko ekki að láta fram hjá okkur fara.
Á föstudaginn þegar þau fara yfir til Long Island þá ætlar Ásdís að koma frá Boston. Hún og Doddi fá víst ekki spring brake á sama tíma svo að ég verð svo heppin að fá hana til mín, veivei! Við ætlum að hafa það rosalega gott og jafnvel kíkja í H&M Eye-wink .

Já eitt sem að ég gleymdi að nefna. Á föstudaginn síðasta plataði ég Gumma með mér í Crate and Barrel þar sem að hann gaf mér kertarekka. Lára var með svoleiðis í stofunni sinni og síðan við fórum til Boston um daginn hefur mig langað í svoleiðis. Gummi handlagni skellti honum svo upp á vegg með vinstri og síðan þá er búið að vera svo kósí hjá okkur. Loksins loksins er komið eitthvað á stóra tóma stofuvegginn.

Nýi kertarekkinn

Comments

Hæhæ,vá rosalega eruð þið vinsæl þessa dagana, bara gestagangur nonstop ;o) Hjá okkur tímir enginn að koma fyrr en í sumar út af kúlubúanum sem allir vilja sjá eftir fæðingu. Hinsvegar held ég að ALLIR sem eru skyldir mér séu nánast búnir að melda sig í heimsókn á sama tíma. Verður svaka fjör að vera nýorðin mamma again, með þeim þægindum og svefni sem því fylgir og með fullt hús af gestum. Hugsa að ég verði eitthvað að skipuleggja heimsóknir fólksins áður en að þessu kemur )Kertastjakinn er GEGGJAÐUR. Gæti sko alveg hugsað mér einn svona á stofuvegginn minn ;o)Jæja bið að heilsa ykkur Ameríkubúunum.Bestu kveðjur frá Álaborgarliðinu
Já það er svo gaman að fá svona marga gesti.Við ætlum svo að skella okkur til Chicago til systur hans Gumma og svo kemur fjölskyldan hans Gumma hingað um páskana. Það verður komið sumar áður en ég veit af:)
Svo koma Brynja og Hinrik eftir páska og svo kannski Gunnar og Þóra í lok apríl!!
Vá þetta er alveg æðislegur kertarekki hjá ykkur!!! við myndum nú alveg sætta okkur við hann á tómu veggjunum hérna hjá okkur í reykjavíkinni;DKveðjaErlendur, Þórunn & co
:)
Takk fyrir það, loksins er orðið hlýlegt hérna í stofunni hjá okkur.Gaman að heyra frá ykkur:)
Til lukku með kertastjakann og með almennilegt blogg loksinsÉg ætti að gera samning við Crate & Barrel því bæði þú og Magga eruð búnar að kaupa sér svona kertastjaka í kjölfarið að hafa séð listaverkið á veggnum hjá mér.... ekki leiðinlegt það.... enda hriiiikalega smart stykki..Hafið það gott með allar heimsóknirnar
Ég sá hann fyrst og hananú!Ég féll fyrir þessum veggstjaka þegar ég flutti til boston des 05' og ákvað þá að ég myndi taka hann með mér heim Svo sýndi ég Láru hann þegar við fórum með henni í Crate og Barrel...muhahaen sniðugt að við eigum allar svona því íbúðirnar okkar hittast aldrei!
...
Við ættum að opna saman Crate & Barrel  búð á Íslandi þar sem að við föllum allar fyrir þessu:)Góða við það að við eigum allar svona er að  "we will all feel like home" þegar við förum í heimsókn til hver annarar!
Ég er til!
Sko ég ætla að byrja á því að segja að ég hef ekki getað kommentað hérna í háa herrans tíð... en nú er klárlega betri tíð!!Langaði svo líka til að segja þetta:Haltukjafti (segist hratt) hvað þetta er flottur kertastjaki...!!!En já annars gaman að sjá að þið séuð hress og kát:)Ha en hyggelig dag!
Hæhæ, nýbúinn að rekast á þessa síðu hjá ykkur, hér með er hún sett í bloggrúntinn.....rosalega töff kertastjaki...Kv. frá fjölsk. Blåkildevej 106, Álaborg, DK
Halló halló ætlaði að kommenta að mig langaði líka í svona kertastjaka á stóra auða vegginn minn en sá svo að fullt af öðru fólki var búið að því þannig að ég hætti við. Í staðinn ætla ég því að segja hvað ég hlakka ÝKT mikið til að koma í heimsókn eftir páska
Ég hlakka líka Ýkt mikið til að fá þig í heimsókn;)
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook