Dagskrárumræða
By asdis - March 28th, 2007
Hellú,
Ég var að fara yfir planið og datt nokkrir hlutir í hug.
Mér finnst að við ættum frekar að keyra frá Loisville til Memphis 25. maí í staðinn fyrir að taka keyrsluna í tveimur hlutum á tveimur dögum. Annars verðum við líka að keyra í 4 daga í röð. Ég held að það sé líka hæpið að ætla að keyra fyrst í rúma 3 tíma og fara svo í Graceland, einhvernveginn held ég að það sé smá "pakki" að fara þangað.
Eins mundi ég vilja koma til Las Vegas einum degi seinna eða 4. júní og nota 2. júní í að keyra að Grand Canyon og skoða og 3. júní í að kíkja á Hoover Dam og keyra til LV. Mér finnst frekar hæpið að við náum að keyra fyrst til Grand Canyon og skoða það og fara síðan í Hoover Dam og keyra til Las vegas.
Í staðinn legg ég til að við keyrum frekar upp Californíuströndina á einum degi, þá þurfum við ekki "auka" daginn 7. júní til að keyra.
Hvað segið þið hin?
Leiter

Comments