Minningargrein Ástu frænku

Eftirfarandi minningargrein fór í Moggann um elsku Ástu frænku:

Formáli:

Ástríður Halldóra Hallgrímsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 25. september 1924 á Grímsstöðum í Ofanleitissókn í Vestmannaeyjum. Hún lést á Eir hjúkrunarheimilinu 21. september 2010. Áður til heimilis á Sléttuvegi 13 í Reykjavík. Ástríður giftist Kai Ólafssyni veslunarmanni þann 4. júní 1949. Kai dó þann 27. september 1968. Kai lést úr kransæðastíflu árið 1968. Ástríður og Kai voru barnlaus.

Foreldrar Ástu voru Hallgrímur Guðjónsson, sjómaður á Grímsstöðum í Vestmannaeyjum og kona hans, Vilhelmína Jónasdóttir.

Systkini hennar voru Jóna Laufey Hallgrímsdóttir (fædd þann 6. mars 1920), Júlíus Vilhelm Hallgrímsson (fæddur þann 20. ágúst 1921) og Ragnheiður Reynis (30. júní 1929). Ragnheiður lést þann 16. júlí árið 2002. Jóna Laufey og Júlíus Vilhelm eru bæði á lífi, Júlíus í Vestmannaeyjum, en Jóna Laufey býr í Reykjavík.

Jarðaför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.

Minningargrein:

Elsku Ásta frænka okkar lést á elliheimilinu Eir þann 21. september 2010 eftir langvarandi veikindi. Við systkinin eigum margar góðar minningar um Ástu. Okkur þótti gaman að vera innan um Ástu og hún sýndi okkur og börnum okkar ótakmarkaðan áhuga þegar við komum í heimsókn. Við áttum oft langar samræður við hana um allt milli himins og jarðar.

Við munum sérstaklega eftir samræðum okkar við Ástu þegar við vorum táningar. Hún kom fram við okkur sem fullorðna og var alltaf til í að spjalla við okkur um allt frá skólamálum til ástarsorga. Hún var óspör á hrós og var stolt af fjölskyldu sinni. Ásta gladdist með okkur þegar hlutir gengu vel og stappaði í okkur stálinu þegar við vorum sorgmædd. Hún dæmdi aldrei og hlustaði alltaf. Hún var mjög góður vinur sem alltaf var hægt að tala við.

Ástu þótti vænt að fá heimsóknir og átti alltaf eitthvað góðgæti handa okkur og börnum okkar. Hún hafði alltaf mikinn áhuga á stjórnmálum og fylgdist ávallt með þjóðfélagsmálum, sama hvað dundi á í eigin lífi.

Hún elskaði að tala um tísku, sérstaklega tískuna þegar hún var yngri. Oft sagði hún sögur af flíkum sem hún keypti þegar hún var yngri. Þá þurfti hún að spara í marga mánuði til að kaupa flottustu fötin í flottustu búðunum. Henni þótti mikilvægt að líta eins vel út og aðstæður leyfðu. Hún elskaði fallega klúta og trefla, var alltaf í fínum bolum með æðislegt bleikt naglalakk. Hún var fín frú.

Ásta eignaðist ekki börn og þróaðist því samband okkar systkina við hana á margan hátt eins og samband við foreldri. Móðir okkar var stoð og stytta Ástu á seinni árum og hvatti okkur reglulega til að heimsækja Ástu. Mamma kenndi okkur virðingu í verki og Ásta eignaðist þannig hluta í okkur og auðgaði líf okkar með nærveru sinni. Hún var merkileg kona og við munum sakna hennar.

Við viljum færa sérstakar þakkir til starfsfólksins á 1. hæð B álmu á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka vináttu og nærgætni í veikindum Ástu.

Hvíl í friði, elsku Ásta frænka okkar.

Kolbrún Svala, Guðmundur Jónatan og Elísabet Erla.

Comments

Post new comment

The content of this field is kept private and will not be shown publicly.
  • Textual smileys will be replaced with graphical ones.
  • You can use Markdown syntax to format and style the text. Also see Markdown Extra for tables, footnotes, and more.
  • Allowed HTML tags: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <img> <p> <br>

More information about formatting options

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook