Bíltúr um Bandaríkin, dagur þrjú: Á leiðinni til Memphis

Tagged:  

Loksins alvöru bíltúrsdagur! Þriðji dagurinn í leiðangrinum var helgaður keyrslu. Við vöknuðum um hálfníuleytið og fylltum á eldsneytið á flatbökuafgöngum gærdagsins. Ekki var til nóg af pizzu handa öllum þannig að við keyrðum á "7-Eleven" og keyptum okkur hollan morgunmat og maul á veginum.

Við höfðum tekið eftir að banki nálægt mótelinu okkar var bæði afgirtur og lokaður. Það vildi ekki betur til en að bankinn ta'arna hafði verið rændur stuttu áður. Merkilegt, en við vorum ekki grunuð um verknaðinn þannig að við keyrðum af stað til Knoxville.

Ásdís hóf daginn undir stýri og sigldi fleyinu með trausti fyrstu klukkutíma keyrsludagsins. Lára tók við eftir nokkra tíma og þá hófst epísk pókerbarátta í aftursætinu. Ég, Ólöf og Doddi slögguðum út tvo leiki. Það er eins og kerran hafi verið hönnuð fyrir póker!

Stuttu eftir að Ólöf tók við stýrinu flössuðu skilti um að það hafði orðið slys á veginum sem við höfðum áætluð að myndi bera okkur alla leið til Knoxville, "I-81 South". Ólöf beygði því hetjulega af veginum og Jill reiknaði aðra leið fyrir okkur. Jill er GPS tækið hans Dodda, sem leiðbeinir okkur um víðáttur Bandaríkjanna með ljúfri kvenlegri röddu.

Nokkru seinna tók Gumminn við stýrinu og brummaði alla leið til Knoxville. Þar rúntuðum við um miðbæinn. Ég er ekki frá því að allir unglingar bæjarins hafi þar verið samankomnir til að spóka sig. Við lögðum bílnum og röltum að risastórum veitingastað. Bragðlaukar okkar fengu að njóta fajitas, nachos, hamborgara og girnilegrar steikar. Ég smakkaði á lókal bjórnum, Woodruff IPA, sem er girnilegur bitur bjór í anda Brooklyn Lager.

Eftir girnilega máltíð skutlaði Ólöf okkur að Days Inn móteli 20 mínútum fyrir utan Knoxville. Þar tókum við einn pókerleik og hoppuðum síðan upp í rúm.

Nú er klukkan ca. 11 daginn eftir og við erum að leggja af stað til Nashville að skoða okkur um. Sú ferð mun taka u.þ.b. þrjá tíma. Frá Nashville keyrum við í aðra þrjá tíma í dag og plönum að gista rétt fyrir utan Memphis...

...og já, það er þrjátíu stiga hiti og glaðasólskin!

Comments

Takk fyrir skrifin, við fylgjumst með ykkur ég og Björg. Annars vorum við Björg að senda ykkur smá póst, tékk it. kv. Á&B
Takk fyrir það. Verst að við getum ekki náð að hittast fyrr en í ágúst. Ágúst í ágúst, bobbí bobbí ba...
n/a
Enn les ég og er spenntur. Þið eruð enn ekki komin að Elvis the pelvis, en nálgist hratt. Hættið þessum póker leik, þetta er handbendi djöfulsins. Gaman að fylgjast með. Allt rólegt hér, komið sumar og sól með yfir 5 stiga hita - stundum. Kveðja, pabbinn 
Amm, Elvis er búinn. Alltaf í póker. Tókum einn leik í gær fyrir svefninn. Maður þarf að æfa sig fyrir Vegas.
n/a
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook