Til hamingju með afmælið!

Í dag á mamma mín afmæli og það á að vera að vera kökuboð heima í kvöld. Ég verð að viðurkenna að ég er með smá heimþrá núna. Sé fjölskylduna fyrir mér, með kveikt í arninum og fullt af kökum og heitum réttum. Vildi að ég gæti skotist heim í smá stund.

Við vorum minnt á það áðan hvað við búum í stóru ríki. Það er farið að kólna aðeins hérna og þegar við fórum á fætum vorum við að tala um það að það væri nú kannski komin tími á það að kveikja á ofnunum. Síðan fer ég á mbl og fyrsta fréttin er:
Fjöldi fólks rafmagnslaus vegna mikillar snjókomu í New York ríki. Hérna er nefnilega fallegasta veður, 10°C og sól.

Comments

Já og fyrir utan það að það sé 10°C úti þá var 28 stiga hiti fyrir 5 dögum... það er líka skrýtið...
Þið eruð með GLÆnýtt blogg og eruð hundléleg að blogga... Hana nú! Áfram svo.... ekkert hangs :)MEira að segja ég vinn ykkur heheh og þá er nú mikið sagt
Heyr heyr, ég er sko sammála Láru;)
Já þetta held ég að sé bara slappasta blogg sem sögur fara af..
Láttu þau ekki hafa áhrif á þig. ekki er betra að vera að bulla bara eitthvað um ekkert. mömmur taka upp hanskann fyrir börnin.
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook