Við erum á lífi :)

Jæja við erum ekki duglegust í að blogga en vonandi verðum við duglegri.

Við erum búin að bralla ýmislegt síðan við komum aftur. Ádsís og Doddi fluttu hingað í Park Slope í sumar og við erum búin að vera dugleg að hittast.

Hinrik flaug hingað og Brynja kom með og við fórum út að borða með þeim og Dodda og Ásdísi þar-síðasta fimmtudagskvöld og síðan hittum við þau í Soho aðeins áður en að þau flugu aftur heim daginn eftir.

Magnea og Lilja komu hingað sama dag og fórum við aðeins út á lífið með þeim og Rabba á föstudagskvöldið. Ólöf klára gleymdi veskinu sínu í leigubíl og þar sem að það eru milljón leigubílar í þessari borg þá er það týnt og tröllum gefið. Í veskinu var síminn minn, peningaveskið með öllum skilríkjunum mínum og síðast en ekki síst, tata, vegabréfið mitt. Ef einhver er búin að reyna að ná í mig þá er ég ekki viljandi að reyna að dissa þá, bara svo það sé á hreinu.

Sunnudagskvöldið eftir það var póker hjá Dodda og Ásdísi, voða gaman.

Ásta Villa og Tanja voru hérna þar sem Ásta tók þátt í tískusýningu. Við Gummi vorum með vitlausa dagsetningu og þar sem ég týndi símanum mínum þá náðum við ekki að hitta þær nema einu sinni, síðasta kvöldið þeirra. Þær buðu okkur voða flott út að borða á stað sem heitir Buddakan á þriðjudagskvöldið, við voða heppin. Smiling

Eftir þessa skemmtanatörn þá var komin tími á að verða veik og lá ég í rúminu í 2 daga. Þar sem að ég er svo mikill sjónvarpssjúklingur þá fékk ég Gumma til að dröslast með rúmdýnuna fram í stofu og lá ég þar í sjónvarpsglápsmaraþoni. Ljúfa líf, ljúfa líf...

Á föstudagskvöldið fórum við í grill til Dodda og Ásdísar. Fengum okkur smá í eina tána og prófuðum svo Guitarstar sem er bara snilld. Enduðum svo með því að fá okkur í allar hinar tærnar líka og skiptumst á Guitarstar og Singstar. Vá hvað það var gaman hjá okkur. Smiling

Í gærkvöldi fórum við svo út að borða með fullt af Íslendingum: Dodda, Ásdísi, Jóel, Brynju, Gumma, Bjarna Kristni og Kristínu. Jóel er í heimsókn hjá Dodda og Ásdísi og var að því tilefni blásið til skemmtunar. Við fórum á stað sem heitir Matsuri og fengum voða gott sushi. Eftir það fórum við á tvo staði áður en við Gummi stungum af. Vorum enn þreytt eftir grillið hjá D&D.

Jæja, látum þetta gott heita í bili...

Comments

Jibbí, til hamingju með bloggið:)
Get ekki verið meira hjartanlega sammála henni Erleni Björk... til hamingju með bloggið.. já þá fyrst og fremst vegna þess að þá blasir ekki þessi ógeðslega mynd við þegar maður opnar síðuna ykkar hehehheh e:) Greinilega nóg að gera í tjúttinu.. maður verður greinilega að fara að skella sér til NYC og tékka á stemmningunni... LGG
Mér var bent á að það heitir vist Guitar Hero en ekki Guitar Star
Bíddu bídddu er bara bloggað einu sinni og svo bara búið??????    
Vei...
n/a
Hæ krúttin mín.  Fékk kveðjuna frá ykkur, fyndið hvað heimurinn er ofsalega lítill hihi. Vona þið hafið það alveg ofsalega gott. Langaði bara til að kasta smá kveðju á ykkur.  Risa knús
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook