Skattaframtal og staðfestingartakki

Jæja litlu sykurhnoðrar. Ég var að enda við að klára skattaframtalið mitt. Sú vinna tók mig samtals 10 mínútur. Guð blessi Lýðnetið!

Það hefur víst gengið erfiðlega fyrir fólk að "kommenta" á síðuna okkar þannig að ég tóka út staðfestingarkóðann og setti aðrar spamvarnir sem notendur síðunnar þurfa ekkert að pæla í. Nú er um að gera að kommenta bara...

Comments

Hæ hæ, Takk fyrir skemmtilegt blogg, er kíki reglulega en er ekki nógu duglegur að kommenta. Gaman að fá blogg frá Gumma líka - keep it up! kv. Ágúst
Ég er búinn að bíða lengi eftir þessu Gummi minn... búinn að eiga í stökustu vandræðum með að kommenta. Hélt kannski að þú hefðir bara séð til þess að ég einn og sér gæti ekki kommentað út af fyrri mjögsvoleiðinlegumkommentum! En ég vona ekki:) hehe! Farðu nú að taka fleiri myndir af þér, ekki ykkur heldur þér!! Það styttir daginn að sjá þig mongólítan taka syrpu... hahahhahah!! Ekkert illa meint Ólöf:)   Kær kveðja, Óli Þór 
Hæ hæ, Nú kemur smá sjálfstæður pistill inn á síðuna ykkar þar sem að mér finnst ég hafa svo merkilega sögu að segja... Fyrir þremur nóttum síðan dreymdi mig nebbnilega um Gumma vin minn og þar sem að draumurinn var svo merkilegur og af því að ég tók upp á því í fyrsta skiptið að muna eftir draumnum þá fáið þið að heyra frá því hér. Sagan er þannig að Gummi hringdi til okkar Bjargar og sagðist ætla að koma til Íslands, sérstaklega til að hitta okkur út af stóra viðburðinum (veit reyndar ekki hver viðburðurinn var...). Þegar hann sagði mér þetta varð ég rosalega ánægður og sagði Björgu og við vorum rosalega ánægð með Gumma að hann skyldið koma út af þessum stóra viðburð... miklar tilfinningar á bakvið þetta hjá okkur. Svo virtist sem að það væri komið að stóra viðburðinum og það er einhver hópur af fólki hjá okkur. Þá kíki ég út um gluggann og sé þá hvíta dúfu fljúgja inn. Um leið og dúfan fagra lendir þá kalla ég á alla... "hei krakkar, Gummi er kominn"... svo labba ég til dúfunnar, tek hana upp og segi svo "Gaman að fá þig Gummi, frábært að þú skyldir gera þér ferð til að koma, alla leið frá Ameríku". Ég var sem semsagt að tala við dúfuna... sem var GUMMI, en hann svaraði mér reyndar ekki. Á meðan ég hélt á Gumma þá sá ég að hægri vængurinn var vafinn í umbúðir, eins og hann hefði slasað sig eða vængbrotnað. Restina af kvöldinu var ég með Gumma dúfu í fanginu og var þvílíkt tilfinningarríkur þegar ég hélt þarna á hvítu dúfunni og klappaði henni... Gummi var sko góður vinur. Mér fannst þetta svo merkilegur draumur að mér fannst ég verða að segja ykkur frá þessu... ef þessi myndræni draumur "meikar eitthvað sens" þá megið þið alveg segja mér frá því   kv. Dúfumaðurinn 
en Skv. Draumur.is táknar að dreyma dúfu: Dúfa <!-- Article --> Sjá kurrandi dúfur er fyrir afar góðu, sérstaklega í sambandi við heimilislífið. Fljúgandi dúfur geta táknað nýtt tækifæri, til dæmis nýja vinnu. Dúfur tengjast bæði ást og friði og geta verið ábending um stefnu í þeim efnum, ekki síst til að öðlast frið í sínu lífi.
þá er bara að sjá hvort þetta eigi við um mig eða dúfuna Gumma
Vá en fallegur draumur Því miður er ekkert sérstakt sem að ég get tengt hann við, en ef að eitthvað kemur upp þá látum við ykkur vita strax. 
Jibbý jeyy, loksins get ég commentað á síðuna ykkar. Ég sver það ég hef SVO oft reynt að gera það en alltaf gengið illa, arrrggg.  Jæja þannig nú verð ég bara að vera dugleg að skella inn skemmtilegum og hressandi kveðjum til ykkar.  Koss og knús BJÖRG  
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook