Viðburðaríkur 17. júní 2009 hófst með því að Ólöf leyfði mér að sofa út. Vei!
Um kl. 11:00 var "brunch" hjá Soffíu og Helga í Fiskakvíslinni. Skrambúlerað egg, beikon og lax. Namm!
Eftir "brunch" var haldið niður í bæ þar sem veðrið var gómsætt (útskýrir of margar landslagsmyndir, sorrí). Við röltum í gegnum hljómskálagarðinn, skoðuðum gömlu druslurnar við Tjörnina, löbbuðum fram hjá Ráðhúsinu og enduðum í Björgúlfsgarðinum þar sem við tókum stuttan bríðer.
Fugl skeit á Gunna og Helgi Valur gomsaði sig næstum því.
Komum við í útskriftarveislu Palla og Jóhönnu. Þau er doktorar. Klára fólk. Til hamingju!
Enduðum daginn á grilluðu lambalæri hjá mömmu og pabba. Aftur namm!
Kristján var eins og engill (er ég þá Guð?) í allan dag. Sat rólegur í kerrunni framan af degi, lék sér við krakkana í útskriftarveislunni og hamaðist svo í ömmu, afa og Elísabetu í Árakrinum.
Takk fyrir bjútifúl dag.
Landvættir
Familían
Bleikir og brosandi
Sæt saman
Myndaalbúmið má skoða á Flickr myndasíðunni.

















Comments
Post new comment