Læri læri læri

Jæja var að tala við Unni Stellu á msn þar sem að hún skammaði mig fyrir bloggletina og minnti mig á að próflestur er engin afsökun.

Fyrsta prófið mitt er á morgun og á ég núna að vera að lesa kaflann um differential relays en á eð erfitt með að einbeita mér. Hinn prófin mín eru svo á þriðjudag og miðvikudag svo að það verður nóg að gera næstu daga.
Gummi er búin að skila af sér 2 verkefnum af 3 og búin með þetta eina próf sem var hjá honum. Hann á að vera að vinna í því síðasta en núna er verið að sýna West Ham - Man. Utd. á Fox þannig núna liggur hann í sófanum og talar við sjónvarpið.

Eins og ég sagði frá í síðustu færslu komu Íris og Lára hingað í byrjun mánaðarins. Það var svo æðislegt að hafa þær hérna. Aldrei lognmolla í kring um þær frænkur. Við bæði höfuðum það rosalega kósí hérna heima og tókum líka túristapakkann.

Það sem stendur upp úr eru töskukaupin í Kínahverfinu þar sem við enduðum í ólöglegum kaupum í litlum 2 fermetra bakherberjum. Vorum búnar á því eftir þau kaup en skelltum okkur í Empire State. Það var svo mikið rok og svo ógeðslega kalt þar uppi að við Íris gáfumst upp fljótlega og biðum inni eftir Láru sem fórnaði sér og tók myndir af ljósadýrðinni. Hún var frekar lengi úti og þegar hún kom loks inn var hún blá á vörunum, úfin og í hláturskasti. Hún var nefnilega að passa sig að taka myndir af helstu kennileitum og húsum og hún fann bara ekki Empire State. Gekk hálfhring um turninn áður en hún áttaði sig á því að hún var uppi í þeirri byggingu. Mmmmuuuahahahahhahhaha.

Eins og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir þá eru fullt af spam-kommentum hér til hliðar og er Gummi búin að lofa að laga það við tækifæri.

Jæja farin að læra...

Comments

Já það var nú heldur betur skemmtilegt hjá okkur!!!!! TAKKK kærlega fyrir mig elskurnar mínar
Ég er innilega sammála Unni Stellu, ef það er einhverntímann ástæða til að blogga þá er það þegar maður er í próflestri Hlakka til að sjá þig...bara nokkrir dagar
Jeijeijeijeijeij loksins eitthvað skemmtilegt að lesa ;o)Þú átt eftir að massa þetta próf á morgun og restina líka. Nú eru líka ekki bara mjög fáir dagar í Íslandsferðina ykkar, svo þetta verður fljótlega búið. Við Íris sem fáum að eyða jólunum í Danaveldi fórum einmitt í gær og reyndum að versla okkur inn í jólafílinginn )Gangi þér alveg osssssalega mikið vel í prófunum. Vonandi hittumst við eitthvað fljótlega, verður samt að öllum líkindum ekki fyrr en ég verð orðin léttari
Hæ hæ,Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, finnst ég vera nýbúinn að kveðja ykkur og þá eruð þið bara á leiðinni heim í jólalætin.Gangi ykkur vel í prófunum og svo vona ég að við hittumst í jólafríinu, fússballborðið bíður eftir ykkur kv. Ágúst Kr.
Já það er rosalegt hvað tíminn líður hratt en mér finnst hann ekki alveg líða eins hratt og ég vildi akkúrat núna. Vildi að það væri kominn miðvikudagur og við búin í skólanum.Það lifnaði alveg yfir Gumma þegar hann heyrði minnst á fússballborðið, hlökkum til að sjá ykkur:)
Glæsilegt, ég er búinn að taka Óla í smá kennslustund í fúss, næst verður það Gummi.Hvað verðið þið annars lengi á klakanum?kv. Ágúst Kr.
Við verðum alveg til 21 janúar svo að það ætti að gefast góður tími fyrir ykkur í fúss
hæ ég bara datt inn á þess síðu gaman að heyra hvað allt gengur vel hjá þér og þínum ég er núna í boston og er að trompetast það væri gaman að heyra í þér upp á gömul kynni og jafnverl hittast eitthvaðég bý fyrir algjörri tilviljun í næsta húsi viið dodda trommara og við höfum hist tvisvar það væri gaman að skreppa til new york og svo gangi tér vel í prófinu
Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORUGN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORUGN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN, Á MORGUN.:-)  :-)  :-)  :-)  :-)  :-)  :-)  :-)  :-) 
Hæ hæ og halló,vildi bara óska þér Ólöf mín til hamingju með daginn. Djísús 27, rosalega erum við öll að verða gömul )Gaman að þú gast allavega eytt hluta af deginum í faðmi familíunnar (er ekki flug hjá ykkur núna í eftirmiðdaginn), en leiðinlegt að við náum ekkert að hittast á klakanum. Ég legg ekki í hann þangað fyrr en eftir 3 daga (Take care og gangi ykkur vel á næstu önn.Bestu afmæliskveðjur frá ÁlaborginniUnnur Stella og fylgifiskar
Takk fyrir það, ó já við erum sko að eldast það er víst.
jæja, tilvalið að byrja nýja önn á því að blogga vel og lengi og oft.koma svo, berjast, ég hef trú á ykkurps. líka til hamingju með daginn gamla konabestu kv
Já ég ætla sko að vera miklu duglegri að blogga á þessu ári en því síðasta, reyndar er ekki erfitt að gera betur þar sem það síðasta var ansi slakkt. Við ætlum líka að breyta þessari síðu þar sem að við höfum fengið margar ábendingar um að þessi sé rosalega hæg, þe hæg og gömul eins og ég:)
BLOGGA BLOGGA BLOGGA BLOGGA
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook