Mér leiddist þannig að ég ákvað að leita hvort einhver hefði tekið myndir af mér að kúka og sett á klámsíðu. Ég leitaði að "Hot Gummi" í google:
http://www.candywarehouse.com/hotfeet.html
Eins og Doddi benti á í skemmtilegri athugasemd við síðustu færslu þá tókst mér að klippa á nýju heyrnartólin mín fyrir MP3 spilarann minn. Spánný Sony Fontopia, klippt í tvennt vegna þess að Gummi gat ekki hamið sig við opnum pakkans...
Haldið endilega áfram að flenna inn athugasemdum við færslur þó að þið sjáið þær ekki koma inn alveg strax. Það er spam sía í gangi til að eyða út öllum auglýsingapóstum sem voru að hrynja inn á síðuna. Á meðan við erum að stilla hana þá sjást athugasemdir ekki fyrr en búið er að staðfesta að þær séu ekki rusl.












