Vorboðinn ljúfi

Loksins er komið vor hérna í New York, allavega fram að helgi, og þá er víst kominn tími til að byrja aftur að skokka í garðinum í stað þess að fara á hlaupabrettið í ræktinni. Í ræktinni horfi ég bara á sjónvarp og hef því ekkert saknað þess að vera að hlusta á tónlist en þegar ég er að lyfta þá er stundum hálf einmannalegt. Þess vegna held ég að það sé tímabært að fá sér iPod fyrir skokkið og lyftingarnar (ú hljómar eins og ég sé massakarl).

En það er ekki nóg að hafa tónlist, það skiptir máli hvernig tónlist maður er með í eyrunum til þess að hvetja mann áfram.
Þess vegna langar mig að fá tillögur frá lesendum okkar að lögum.
Hvað hlustið þið á til að koma ykkur í WorkOutStuð?
... og já hvað litur finnst ykkur flottastur?

Comments

Mér finnst minn silfurlitaði voða fínn.....svo er ég hrifin af þessum græna.....sem kemur kannski ekkert svo mikið á óvart
??
mh..... mér finnst bleikur alltaf flottur en silfraður er kannski svona klassískari!! Ég get því miður ekki ráðlagt þér með lög þar sem ég horfi bara á sjónvarpið í ræktinni og dettur ekki í hug að fara út að hlaupa og missa af sjónvarpinu;)
kemur ekki á óvart að Ásdís finnist græni og Erlen bleikur flottastir, hehehe Sá alla litina í Apple búðinni um daginn og mér finnst bleikur, grænn og blár geggjað flottir!! 
Hellú ... mér finnst allir þessir litir mjög flottir Hér eru nokkur lög sem koma manni af stað ... *MyMyMy - Armand Van Helden *Stisfaction (club mix) - Benny Benassi *Put your hands up for Detroit - Fedde Le Grande *Push up - Freestylers *Call on me - Eric Prydz *100 dollar bill - Crooklyn Clan *Listen to your heart (techno) - DHT *What a feeling (Techno remix) - Flashdance *Boten Anna - BassHunter Get samt ekki sagt að þetta séu eitthvað skemmtileg lög, en þau gefa manni spark í rassinn
úúú góðar hugmyndir, ég ætla að downloada þeim og prófa, takk fyrir þetta
Ég mæli líka með..... Control Myself með LLCool J og J Lo For my people með Missy Elliot Move ya body með nina sky Murder on the dancefloor Walking on sunshine Og eins og Nína segir er þetta ekki endilega mestu gæðin en góður workout taktur Koma svo girls... Workit baby.. svo við verðum allar bestu pæjurnar í Roadtripinu Ólöf þú mátt endilega deila með okkur þínum lögum...  
Það er fátt skemmtilegra en að skokka við góðan takt í flottum spandex-buxum. En ég mæli með að þú fáir þér POLAR púlsmæli, þvílík snilld.  Hann mælir auðvitað púlsinn og er með línurit sem maður getur skoðað árangurinn, svo getur maður stillt inn í hann prógröm (þolþjálfun, brennsla osfrv) og þá gefur hann manni leiðbeiningar um hvort maður sé með "réttan" púls miðað við áætlun. Nú það besta af öllu er: hann segir manni nákvæmlega hversu mörgum hitaeiningum maður brennir, já og hve mörg % af því er fita. Svo getur maður skoðað heildarárangur, viku árangur og sérstaka daga. Hann er líka svo góður vinur manns að hann sendir manni póst á mánudögum með árangri vikunnar, ef maður stendur sig vel fær maður bikarmynd í úrið sitt. Þessi síða er líka snilld: http://polarpersonaltrainer.com/ Já annars hlusta ég oft á GUSGUS þegar ég skokka og jafnvel hressandi rokk. Gúdd lökk
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook