Jæja núna á ég að vera að læra fyrir próf þannig að hvað er betra en að blogga núna. Fyrsta midtermið er á fimmtudaginn í Electric Drives kúrsinum mínum. Ég kláraði heimadæmin fyrir þriðjudaginn í gær þannig að núna liggur ekkert fyrir nema að læra fyrir prófið þannig að ég er eitthvað kærulaus. Er að pæla að fara í ræktina áður en ég byrja að læra. ![]()
Í gær fengum við Helga Hrafn og Ellu Björt í mat sem var voða gaman. Ella Björt býr í Jackson Heights og er hérna í mastersnámi í taugasálfræði og Helgi Hrafn er í nokkra daga ferðalagi og var hann hérna í 2 daga hjá vini sínum og er á leiðinni til Boston núna en kemur aftur á fimmtudaginn og verður hérna hjá okkur yfir helgina. Eina vandamálið er að við Gummi vorum fyrir löngu búin að kaupa miða til Chicago til að heimsækja Kollu þannig að hann verður að mestu leyti einn hérna í íbúðinni. Hann verður þó ekki einn í New York því að hann þekkir fullt af fólki hérna!
Eins og ég sagði síðast frá þá kom Ásdís síðasta föstudag. Fyrr um daginn fylgdi ég Sólrúnu og Lee í Long Island lestina í Atlantic Center og veðrið var svo gott að ég labbaði heim. Komst svo að því þegar ég kom heim að það var 16°C. Ekki slæmt það en á þriðjudeginum þegar ég fylgdi Ásdísi í rútuna í China Town þá var -18°C svo að þetta var skammvinnur vermir, bókstaflega! Það var æðislegt að hafa Ásdísi hérna. Við vorum í þvílíku tjilli allan tímann. Á laugardeginum fórum við í Soho og kíktum í allnokkrar búðir og versluðum pínkulítið. Þegar við komum heim þá eldaði Ásdís handa okkur geggjaðar ítalskar kjölbollur með spaghetti, namm nammm.

Á sunnudeginum röltum við um hverfið og keyptum í sushi og síðan kom íslensk stelpa sem heitir Sigga og klippti og litaði okkur. Gummi kom svo tímalega heim og fékk klippingu líka. Við erum öll voðalega fín núna!
Síðan tók við sushi kennsla frá Ásdísi og gerðum við fullt fullt af sushi og gekk það bara þokkalega. Sushi-ið leit mjög fagmannlega út en vorum við þó sammála um að við höfum smakkað betra sushi, hahaha. ![]()


Annars er ekkert að frétta nema það að þeir seinkuðu klukkunni í dag, þremur vikum fyrr en venjulega þannig að núna er bara 4 klukkutíma munur á okkur og Íslandi.













Comments