Í gærkvöldi hittumst við Ásdís og Lára á msn-inu og pönntuðum hótel í Vegas þar sem við munum stoppa í road tripinu okkar. Fyrir valinu varð MGM Grand hótelið. Endilega skoðið linkinn til að sjá hvað þetta er geðveikt hótel. Hótelið er staðsett á sjálfu Strip-inu, það er með sundlaug sem var kosin 10 flottasta í Vegas og það sem Gummi er ánægðastur með er pókerherbergi þar sem eru pókermót allan daginn alla daga.


Við verðum þarna 3-5 júní og miðað við tíminn líður hratt þá er það nánast i næstu viku. Brynja og Hinkrik koma á morgun og síðan getur verið að Gunnar og Þóra komi hingað í eina nótt 26 eða 27 apríl. Síðan er ég búin að fá fyrstu lokaprófsdagsetninguna sem er 8 maí og hitt prófið verður annað hvort 3 eða 10 maí. Svo fékk ég það staðfest að mamma og Erlen koma hingað 14-20 maí og síðan hefst road tripið 22 maí.
Ef einhver hefur áhuga á, eða þekkir einhvern sem hefur áhuga á að vera í NY í sumar þá ætlum við að reyna að leigja íbúðina okkar á meðan við erum heima.
Íbúðin er á besta stað í Brooklyn, við hliðina á Prospect Park og 15 mín í lest til Manhattan. Íbúðin er laus júní, júlí og ágúst og erum við til í að leigja hana allt sumarið eða mánuð í einu.













Comments