Chicago

Tagged:  

Jæja halló allir og gleðilega páska. Það er sko búið að vera nóg um að vera á þessu litla heimili síðustu daga og mun það halda áfram. En þar sem að það tæki of langan tíma að segja frá öllu núna þá kemur Chicago sagan núna.

Eftir misheppnaða tilraun til að fara heimasækja Kollu þá ákváðum við að reyna aftur viku seinna og heppnaðist það heldur betur vel. Við komum þangað föstudaginn 23 mars og kom Kolla að sækja okkur. Við byrjuðum að fara í skoða háskólasvæðið þar sem að hún vinnur þar sem að við fengum okkur að borða í Bissness skólanum og skoðuðum safn þar sem ég sá múmíu í fyrsta skiptið með eigin augum. Síðan rúntuðum við um Chicago, sóttum Steven og fórum út að borða.

Gummi að reyna að kíkja undir pilsin

Múmíur

Á laugardeginum fórum við að sjá BodyWorlds sýninguna í Museum of Science and Industry, ef þið hafið ekki heyrt um hana þá mæli ég með að þið skoðið linkinn og lesið um þetta. Þegar við stóðum í biðröðinni að bíða eftir því að fara inn þá fannst mér allt í einu krípí að vera að fara að skoða dáið fólk en þetta var magnað.

Body Worlds

Við Kolla skoðuðum allt voða vel, þ.e. skoðuðum inn í líkamana og gengum í kring um þá en Gummi labbaði hraðar í gegn og var meira í því að finna út hvaða hlutir þetta voru í stað þess að skoða þá nánar; hjarta, lifur, karl að sparka bolta, heili o.s.fr. Á leiðinni heim var svo mikil þoka að það sást varla á milli bíla en sem betur fer eru Kolla og Steven með áttavita í nýja bílnum sínum svo að við komumst heim. Um kvöldið fórum við á rosaflottan sushi stað og enduðum svo í ísbúð þar sem ég fékk besta ís sem að ég hef nokkurn tíman smakkað á ævi minni, nammi nammi namm.

Þokan

Kolla og Steven á Sushi staðnum

Á sunnudagsmorgninum fóru Kolla og Steven eldsnemma að taka þátt í 8 km hlaupi (held styrktarhlaupi sem að bankinn hans Stevens stóð fyrir) og við Gummi hittum þau eftir það. Þar sem að fluginu okkar vikuna áður var cancelað vegna snjóstorms þá pakkaði ég fínum vetrarfötum til þess að hafa með mér því að Chicago er nú þekkt fyrir skítakulda á veturna. Þennan sunnudag var aftur á móti rúmlega 25°C og sól og ég þurfti að fara og kaupa mér sandala. Löbbuðum fullt með fram vatninu og skoðuðum Grant Park og Navy Pier.

Hvíta ég fyrir framan baunina

Ég og Kolla við tónleikasvæðið

Við flugum svo til baka á mánudeginum og þurfti ég að fara beint að læra því að það var próf Power Electronics kúrsinum mínum á þriðjudeginum. Á miðvikudeginum þrifum við allt hátt og lágt því á fimmtudeginum komu foreldrar hans Gumma og Elísabet hingað. Gummi ætlar að segja frá því þannig að OVER AND OUT!

Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook