Heimsókn á enda og hversdagsleikinn tekinn við

Tagged:  

Jæja þá eru Erlen og Kiddi farin. Sad
Þau komu á föstudaginn síðasta og fóru í gær.

Við vorum rosalega dugleg að skoða okkur um og versla. Á laugardeginum byrjuðum við á því að fá okkur brunch á dinernum á horninu. Pönnukökurnar og ommeletturnar klikka aldrei og það sem mér finnst alltaf best eru frönsku kartöflurnar, namminamm. Ætli ég verði einhverntíman það fullorðin að franskar verði ekki lengur uppáhalds?

Á þessum 5 dögum fórum við í hestvagn í Central Park, skoðuðum Ground Zero, fengum okkur besta ís í heimi í China Town, borðuðum pizzu í Litlu Ítalíu, versluðum í Soho, fórum upp í Empire State, klipum í rassin á Beyonce í Madame Tussauds vaxmyndasafninu, fórum aftur og aftur í 3 H&M búðir, spókuðum okkur á Times Square, fórum í geðveikis dótabúðir og löbbuðu það mikið að mig verkjaði í lappirnar.

Annars er svo sem ekkert að frétta. Við erum bara að læra læra og núna er ég byrjuð að telja niður dagana í að við förum heim. Bara 43 dagar, vei vei, Smiling

Eftir ca 2 vikur er svo Thanksgiving og þá koma Kolla og Steven til New York eða nánar til tekið New Jersey þar sem foreldrar hans búa. Foreldrar hans voru svo indæl að bjóða okkur í mat, svo að við fáum að upplifa alvöru thanksgiving máltíð. Svo fáum við jafnvel gesti í vikunni þar á eftir, en það er ekki enn komið á hreint. Ég ætla að skella inn nokkrum myndum frá síðustu dögum núna og svo ætla ég að njóta þess að liggja upp í sófa og horfa á Breakfast at Tiffany´s.

Comments

Hæ sæta, mikið rosalega er gaman að fylgjast með blogginu ykkar Hlakka til að sjá þig um jólin!
... og auðvitað verður gaman að sjá Gumma líka
Hæ þið haugar!! Hvern á ég að aflífa fyrir að láta mig ekki vita fyrr af þessu bloggi ykkar???? Voru þið hrædd um að ég yrði með 1hvað skítkast eða dólgslæti hérna???? Ég, þessi sómapiltur myndi ekki gera svoleiðis:) hehe! Allavega gaman að því að þið séuð að leyfa fólki að fylgjast með ykkur. Og Gummi, takk fyrir kommentið á síðunni minni.... Fólk heldur örugglega að ég sé hálfviti!! hehe! En það er bara fyndið... Ástar- og saknaðarkveðjur frá Osló, Óli Þór! p.s. ég er að hugsa um að biðja flugfar til ykkar í útskriftargjöf... myndi það ekki vera í góðu?
Hæ Óli minn og fyrirgefðu að við höfum ekki fattað að láta þig vita. Ég setti slóðina á msn-ið mitt en lét engan vita. Fattaði ekki að ég er ekki með þig inni á msn-inu mínu. Til að bæta þér þetta upp þá færðu konunglegar móttökur þegar þú kemur til okkar. Þú er alltaf velkominn, hlökkum til að fá þig hingað. Hittumst þó vonandi eð um jólin.
Að öðru.... Var að skoða myndirnar ykkar og bwhahahahahahahaha!! Gummi þú ert van... hehe! Þessar pósur þínar eigi heima í tískublöðum, klárlega mjög svo vanmetið módel þarna á ferð:) hehe! Ég ætla samt að kjósa bestu myndina.... Myndin úr fyrsta albúminu þegar þú ert í HK-bolnum! Ekki spurning...
Datt það í hug. Er alltaf búinn að vera biðja Ólöfu að taka mynd af mér í þessum bol: "Óli á eftir að fíla þetta í tætlur, eina mynd í viðbót..."
n/a
Ég var líka að spá hvað Gummi væri að gera í HK bol, hélt hann hefði skipt um lið á gamals aldri.

Hæ hæ, Við erum eiginlega í sjokki yfir því að þið hafið ekki látið okkur vita fyrr af síðunni ykkar. Við erum einmitt búin að spá mikið hvort þið ætluðið ekkert að fara að skella einni síðu saman. En allavega gott að vera farin að geta fylgst með ykkur á veraldarvefnum.

En þangað til næst, kossar og knús

Björg og Ágúst

Hæ hæ, Gummi er hálf skömmustulegur hérna að fatta að hann gleymdi að láta ykku öll vita af síðunni. Vonandi fyrirgefið þið okkur og verið dugleg að commenta hérna. Við þurfum líka að vera duglegri að blogga. Bæti úr því að morgun. Á morgun segir sá lati:)
Ólöf er lygakvendi. Þetta er hrein lygi.
n/a
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook