Skiptum hátíðsdögum niður þetta árið þ.a. við vorum aðfangadaginn í Fiskakvíslinni hjá Helga og Fíu og gamlárskvöld með Kristjáni og Möggu.
Fyrstu jólin hans Kristjáns voru spennandi. Hann fékk, af því virtist, óendanlegt magn af jólagjöfum. Meðal gjafa voru tvær brjálaðar gjafir frá Kollu frænku hans sem burðaðist með risastóra tónlistargræju og öðru stóri dóti frá Bandaríkjunum.
Rjúpan var góð, frómasinn ekki síðri og kvöldið frábært.
Forrétturinn tilbúinn og Kristján enn sofandi
Grundarfrómasinn :)
Mæðgurnar
Bræðurnir
Sjarmatröll
Myndaalbúmið má skoða á Flickr myndasíðunni.


















Comments
Post new comment