Hótel í Vegas

Sælir samferðamenn:) Ég átti að vera að læra núna í morgun og hvað er þá betra en að finna hótel í Vegas. Mig langar í kjölfarið að koma með eina tillögu. Málið er að gistinóttin er svo dýr á föstudögum og laugardögum þannig að mér datt í hug að það væri kannski betra að gista á ódýru hóteli nálægt Hoover Dam eða Grand Canyon 2 júní og halda svo snemma inn í Vegas á sunnudeginum og vera þá á MGM Grand eða Palms. Endilega tjekkið á þessu og skoðið verðið fyrir þessa daga 2-4 júní.

Comments

Ja eg er sammala, mer finnst ad vid aettum ad gista hja grand canyon og fara daginn eftir til LV. En mer er nokk sama um hotelid......
Hæbb.. ég vildi bara fá eitt á hreint áður en ég mynda mér skoðun Ég fíla punktinn að gista fyrir utan Las vegas.. einhversstaðar frá Grand Can. til Las Vegas.. með Hoover Dam þar á milli til að spara pening, fá ódýrari gistingu eina nótt. Hitt sem ég næ ekki úr textanum er sú spurning að erum við þá að "fórna" einni nótt í vegas fyrir það eða er pælingin að vera fyrst eina nótt þarna og svo tvær í Vegas... því ég er alveg á þessu en ekki ef við erum að gefa upp eina nóttina í Vegas. Held nefnilega að það sé ekki eins mikið við að vera og sjá á daginn í Vegas.. og því vildi ég alveg hiklaust vera í Vegas í tvær nætur og hafa það kósí án þess að keyra 2000 mílur og bara fá okkur kokteila, spila í kasínóinu og skoða okkur um. Einnig finnst mér að þetta sé eiginlega eini staðurinn þar sem ég vil endilega eitthvað sérstaklega vera á fínu hóteli og hafa það kósí...æi þið skiljið... Endilega látið mig vita hvað þið voruð að pæla.. með þssa eina nótt tvær nætur ble kv. LáRa ...og ég held að mitt atkvæði fari í MGM hótelið
það sem ég var að meina er að vera á hóteli fyrir utan Vegas á laugardagsnóttina og vera svo í Vegas 2 nætur.
einhverja hugmynd hvort það sé meira skemmtilegra að vera í vegas á laugardagskvöldi heldur en venjuleg vikudagskvöld? Mér finnst þetta snilldarhugmynd ef við gætum þá kannski haft planið þannig að gista föstudagsnótt fyrir utan og svo laugardags og sunnudags nótt í vegas... how does that sound? Við Nína fundum á MGM tveggja nótta herbergi fyrir þá tvo á innan við 500 dollara... það er nú ekkert svo slæmt þar sem þetta er svona það flottasta sem við ætlum að gista í allri ferðinni...eða hvað segið þið? LáRa
Vil ekki vera leiðinleg en ef að við ætlum hvort sem er að vera að ferðast allan laugardaginn að skoða Grand Canyon og það þá verðum við örugglega frekar þreytt um kvöldið . Ég og Gummi viljum því frekar fara þangað bara á sunnudaginn og vera sunnudags og mánudagsnætur og fá 2 nætur fyrir 2 á 280 dolllara. Held líka að það skipti engu máli hvaða vikudag maður er í Vegas.  En ef að þetta er það sem allir vilja þá eltum við hjörðina.
tíhíh leiðinleg er langt í frá eitthvað sem hægt er að vera... enda erum við sex einstaklingar að plana þessa ferð saman og þess vegna er skemmtilegast að heyra allar og sem flestar mismunandi leiðir áður en við komust að ákvörðun. Ég held ég sé reyndar alveg sammála þér að það skipti engu máli hvaða vikudag maður sé í Vegas... það eru allir dagar jafn geðveikir í bókstaflegri merkingu. Um að gera ef að sun og mán eru ódýrari þá getum við frekar leyft okkur þá að vera á einmitt svona góðu hóteli... óþarfi að bæta við extra kosnaði bara af því að það er einhver sérstakur vikudagur.. En ég verð samt bara að segja... og þið verðið að lofa að verða ekki fúl: ....... ........ ÉG ER ORÐIN ÓGEÐSLEGA SPENNT! OH MY GOD
Hmmmm er ekki alltaf jafn mikið stuð í Vegas hvort sem um er að ræða vikukvöld eða helgarkvöld?  Ef svo er, þá vil ég frekar spara aðeins og vera á virkum degi. Mitt atkvæði fer á Palms hótelið.......afþví það kom í Girls Next Door
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook