Burr

Tagged:  

Jæja þá erum við komin aftur heim eftir æðislega ferð til Boston.
Á móti okkur tók þvílíkur kuldi en núna er -12°C sem "feels like" -21°C og í fréttum er talað um deadly cold. Ég ætla ekki út fyrr en ég þarf að fara í skólann.
Núna þarf ég að gera fullt af heimadæmum fyrir skólann í kvöld og morgun og þegar ég er búin með þau þá mun ég setja inn ferðasöguna og myndir.
Over and out

Comments

Heyriði mig... Er kominn aftur og kem pottþétt aftur seinna! Svo ætla ég að koma í heimsókn. Þá kem ég með geitaost með mér. En það er eins gott að fara koma sér að verki núna. Þarf að koma frá mér nokkrum setningum á blað. Það er gert svo að leiðbeinandinn komi ekki á mig af reiði. Ef það gerist þá gæti það komið illa út fyrir mig. Hey já, ég kom sjálfum mér á óvart um helgina. Fór á Þorrablót hér í Osló og kem kannski með sögu af því seinna. Kannski að ég komi með eina stutta setningu sem að útskýrir málið. Ég hitti stelpu og kom! Komið til skila? Allavega, þá er -12 hitabylgja hér í Osló... Bíðið bara þangað til að það fer niður í -20!! Það er fáránlega kalt!Kær kveðja frá Osló í -4Óli Þór
Djísús hvað það er kalt hjá ykkur. Hérna er svosem ekkert hlýtt, en ekkert í líkingu við þetta, bara -2. Nógu kalt samt til að ég er búin að ná mér í myndarkvef, þannig að ég er bólgin hægra megin í andlitinu, ægilega gaman. Enda ligg ég ein heima í rúmi og er að reyna að lesa Power System State Estimation, en er ekki að nenna því )
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook