Halló halló

Jæja jæja.

Loksins er síðan tilbúin og myndir komnar inn á hana. Gummi er búinn að sitja sveittur við tölvuna kvöld eftir kvöld við að koma henni í loftið og TA TA hér er hún. Við mælum með að ef að þið eruð með Mozilla vafrann að þið skoðið síðuna í honum því að hún er ekki alveg eins fin í Explorer. Gummi setti svo inn voða fínan fídus á myndasíðuna sem virkar þegar þið veljið slædsjóv fyrir neðan myndirnar. Hann er svo flinkur drengurinn!

Við erum annars búin að koma okkur ágætlega fyrir. Eigum enn eftir að kaupa sófaborð og setja e-ð á veggina en þar sem að við erum LOKSINS komin með nettengingu og sjónvarp þá er orðið mjög heimilislegt að okkar mati. Eins og þeir sem þekkja okkur vita þá er það eina sem ég þarf er sjónvarp og eina sem Gummi þarf er nettengd tölva.

Skólinn er svo byrjaður á fullu. Við erum alltaf í tímum á kvöldin, annars vegar frá 6:00-8:15 eða 8:20-10:35. Við tökum bæði 3 kúrsa og okkur tókst báðum að velja kúrsa þannig að við erum í skólanum mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga. Ég átti í smá erfiðleikum með að velja kúrsa þar sem að þeir kenna ekki svo marga Power System kúrsa og síðan eru nokkir skyldukúrsar og þeir sem mig langaði að taka voru allir kenndir á sama tíma. Ég endaði á því að velja:

  • Power System Analysis sem er grunnkúrs og ágætis upprifjun.
  • Probability sem er einn af skyldukúrsunum sem ég mátti velja um og þar sem líkindareikningur hefur aldrei verið mín sterka hlið þá fannst mér frekar sniðugt að taka þann kúrs, sjáum til hvort að mér finnist það enn sniðugt í lok annar.
  • Relay Fault Protection sem er frekar erfiður og ég hafði aldrei hugsað um að taka svoleiðs kúrs en tímarnir hafa verið mjög fínir hingað til og kennarinn er bara of næs.

Gumma kúrsar eru:

  • Marketing
  • Entrepreneurship & New Venture Creation.
  • New Product Development.

Ég veit í rauninni ekki meira um kúrsana hans en hann er að ég held frekar ánægður með þá.

Ásdís og Doddi eru svo að koma í heimsókn til okkar á fimmtudaginn og ég hlakka svo til. Við ætlum að fara í leikhús og sjá Spamalot og svo ætlum við Dísa að skella okkur í Sex and the City túr. Hver veit svo nema að við kíkjum kannski í eina eða tvær búðir. Ég veit ekki hvort að þið trúið því en ég hef ekki stigið fæti inn í eina skóbúð og hef ekki keypt mér eitt einasta fat. Meira að segja Gummi er farin að tala um að ég verði að fara að kaupa mér e-ð og yfirleitt þarf ég ekki hvatningu.

Ætli þetta sé ekki orðin nógu löng færsla svo bæ í bili.

Comments

Til hamingju með flottu heimasíðuna ykkar:) Þið verðið að vera dugleg að skrifa og setja inn fullt fullt af myndum svo ég missi ekki af neinu;)
Fínerís síða hjá ykkur skötuhjúunum Sjáumst á morgun....nei í dag, klukkan er 00:01...
hæ elskurnar! frábær síða hjá ykkur! flottar myndir og æðislegt að heyra að allt gangi svona vel Skemmtið ykkur æðislega um helgina og við heyrumst bara seinna :**
hæ, gaman að geta fylgst með ykkur. ég bara trúi ekki að þú hafir ekki fengið þér svo mikið sem eitt skópar. þið skvísurnar ættuð að geta bætt úr því um helgina. góða skemmtun
Hæ krakkar. Gaman að geta séð aðeins inní ykkar heim. Til hamingju með þetta allt saman. Njótið þess að vera í ammeríkunni og passið ykkur á pönnukökunum Bestu kveðjur úr sveitinni.
Gaman að heyra frá ykkur. Þið verðið að vera dugleg að skrifa
Síðan er orðin ekkert smá flott hjá ykkur... Verður gaman að geta fylgst vel með ykkur
Flott hjá ykkur,meira að segja ég gat opnað þetta (með hjálp Erlenar) Góða skemmtun um helgina.
Hæ elskurnar okkar!! Yndislegt að fylgjast með ykkur á síðunni, til hamingju með hana - Við söknum ykkar gríðalega mikið!! Gott að geta kíkt á síðuna og fylgst með því sem er að gerast hjá ykkur:-) knús frá Þóru, Gunna og litlu gaurunum á skerinu...
Hæ elskurnar. Ég var að skoða myndirnar á síðunni ykkar þær eru æðislegar. Gaman að heyra í þér Gummi minn og höldum áfram að hafa samband á föstudögum. Hlakka til að sjá ykkur um jólin. Svala amma.
Copyright © 2009 Gummi, Ólöf og Kristján. All rights reserved. Gummi á Facebook Flickr myndasíðan okkar Ólöf á Facebook